Móðurharðindin

Heiti verks
Móðurharðindin

Lengd verks
1 klst. 50 mín.

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Nýtt íslenskt leikrit um móður sem stöðugt fer sínu fram og börnin sem þurfa að taka afleiðingunum. Nema nú er mælirinn fullur!

Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna, þar sem kynhlutverkin eru stokkuð rækilega upp.

Ólíkindatólið Friðrika er nýorðin ekkja og býr ein í gömlu, ríkmannlegu húsi. Hennar eini félagsskapur er húshjálpin Snæbjörn sem lætur lítið fyrir sér fara. Börnin hennar María og Arnmundur hafa ekki séð móður sína í mörg ár en snúa nú aftur á ættaróðalið til að fylgja föðurnum til grafar. Presturinn Svalbrandur gerir sitt besta til að fá rétta mynd af lífi hins látna en það leynist margt undir yfirborðinu og jarðarförin á eftir að setja líf þeirra allra úr skorðum.

Sprenghlægilegt uppgjör við fyrirbærið „fjölskyldu“ með bræðrunum Árna Pétri Guðjónssyni og Kjartani Guðjónssyni í aðalhlutverkum og hinum frábæru gamanleikurum Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Sigurði Sigurjónssyni og Hallgrími Ólafssyni.

Núna er ekkert elsku mamma meir!

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Frumsýningardagur
5. september, 2015

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Kassinn

Leikskáld
Björn Hlynur Haraldsson

Leikstjóri
Björn Hlynur Haraldsson

Tónskáld
Elvar Geir Sævarsson Kristinn Gauti Einarsson Kristján Sigmundur Einarsson

Hljóðmynd
Kristján Sigmundur Einarsson

Lýsing
Ólafur Ágúst Stefánsson

Búningahönnuður
Axel Hallkell, Leila Arge

Leikmynd
Axel Hallkell

Leikarar
Árni Pétur Guðjónsson
Hallgrímur Ólafsson
Kjartan Guðjónsson
Sigurður Sigurjónsson

Leikkonur
Ólafía Hrönn Jónsdóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikhusid.is