Mávurinn

Heiti verks
Mávurinn

Lengd verks
um það bil 3 klukkustundir

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Mávurinn er eitt stórbrotnasta leikrit
rússneska leikskáldsins Antons Tsjékhovs. Það er eitt besta leikrit allra tíma, gamansamt og alvarlegt í senn.
Mávurinn fjallar um lífið sjálft, en þó einkum um líf í listum, ástir og ástleysi. Símon elskar Maríu, María elskar Konna, sem elskar Nínu, sem elskar rithöfundinn sem elskar bara sjálfan sig. Vonlausir listamenn, virtir eða misheppnaðir, reyndir eða barnalegir, í upphafi ferils eða við endalok hans. Nístandi gamanleikur um spurninguna eilífu: Hvernig eigum við að lifa? Ógleymanleg, ljúfsár mynd af manneskjunni. Eins og alltaf þrá allir hið ómögulega, þrá breytingar fyrir tilstilli listarinnar eða ástarinnar.

Anton Pavlovitsj Tsjékhov er eitt mikilvægasta leikskáld allra tíma. Leikrit hans hafa verið á fjölum leikhúsa um allan heim sleitulaust síðustu eitthundrað tuttugu og fimm ár.
Leikritið var frumsýnt í Alexandra-leikhúsinu í Moskvu árið 1896. Þetta er í fyrsta sinn sem Mávurinn er sýndur á fjölum Borgarleikhússins.
Verkið var áður sýnt í Iðnó árið 1971 og
í Þjóðleikhúsinu fyrir næstum aldarfjórðungi. Leikstjóri er litháíska leikstýran Yana Ross sem
vakið hefur mikla athygli bæði í heimalandi sínu og víða um heim ekki síst fyrir nýstárleg og kraftmikil tök á sígildum leikritum.

Frumsýningardagur
17. október, 2015

Frumsýningarstaður
Borgarleikhús Stóra svið

Leikskáld
Anton Tsjekhov

Leikstjóri
Yana Ross

Tónskáld
Gísli Galdur Þorgeirsson

Hljóðmynd
Baldvin Magnússon

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Búningahönnuður
Filippía I. Elísdóttir

Leikmynd
Zane Pihlström

Leikarar
Björn Stefánsson,
Björn Thors,
Hilmar Guðjónsson,
Hilmir Snær Guðnason,
Jóhann Sigurðarson

Leikkonur
Halldóra Geirharðsdóttir,
Katla Margrét Þorgeirsdóttir,
Þórunn Arna Kristjánsdóttir,
Þuríður Blær Jóhannsdóttir,
Guðrún S. Gísladóttir

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is