Njála

Um verkið
Njála er nýtt íslenskt leikverk sem sækir
innblástur í Brennu-Njáls sögu, eina
ástsælustu sögu okkar Íslendinga. Sagan hefur lifað með þjóðinni í sjöhundruð ár, verið lesin í öllum menntaskólum landsins og sjaldan átt meiri vinsældum að fagna en einmitt nú. Hún segir frá því hvernig við urðum
að þjóð, og hetjur bókarinnar, þau Gunnar, Skarphéðinn, Njáll, Hallgerður og Bergþóra eru sveipuð goðsagnakenndum ljóma
og hafa mótað og markað þjóðarsálina allt til þessa dags. Sýningin er unnin í samvinnu við Íslenska dansflokkinn undir stjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar og Ernu Ómarsdóttur, danshöfundar og dansara. Þau munu tjalda öllu til og nýta ótakmarkaða töfra leikhússins til að skoða þessa stórbrotnu sögu frá ýmsum
sjónarhornum í sýningu sem verður í senn forvitnileg, ögrandi og litrík leikhúsveisla. Bardagar, ástir, hefndir og völd en umfram allt Njála eins og þú hefur aldrei séð hana áður.
Mikael Torfason er blaðamaður og rithöfundur og vakti fyrst athygli með skáldsögunni Falskur fugl sem kom út árið 1997, síðan hefur hann sent frá sér fjórar skáldsögur og leikritið Harmsögu.
Þorleifur Örn Arnarsson hefur getið sér
gott orð sem leikstjóri hérlendis og erlendis og hefur m.a. unnið leikgerðirnar að Englum alheimsins og Sjálfstæðu fólki.
Erna Ómarsdóttir er einn virtasti dansari
og danshöfundur Íslendinga og hefur
unnið víða um heim með fremstu dansog
sviðslistahópum Evrópu og listamönnum
á borð við Jan Fabre, Sidi Larbi Cherkaoui, Björk, Jóhann Jóhannsson og Gabríelu Friðriksdóttur. Erna hefur vakið athygli og hlotið mikið lof fyrir sinn einstaka stíl, núna síðast fyrir verkið Black Marrow sem hún samdi ásamt Damien Jalet, en það var tilnefnt til Grímuverðlaunanna 2015 sem sýning ársins.

Frumsýningardagur
30. desember, 2015

Frumsýningarstaður
Borgarleikhús Stóra svið

Leikskáld
Mikael Torfason/Þorleifur Örn Arnarsson

Leikstjóri
Þorleifur Örn Arnarsson

Danshöfundur
Erna Ómarsdóttir

Tónskáld
Árni Heiðar Karlsson/Valdimar Jóhannsson

Hljóðmynd
Baldvin Þór Magnússon / Valdimar Jóhannsson

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Búningahönnuður
Sunneva Ása Weisshappel

Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir

Leikarar

Björn Stefánsson,
Hilmar Guðjónsson
Hjörtur Jóhann Jónsson,
Jóhann Sigurðarson,
Valur Freyr Einarsson,

Leikkonur
Brynhildur Guðjónsdóttir,
Sigrún Edda Björnsdóttir,
Unnur Ösp Stefánsdóttir,
Vala Kristín Eiríksdóttir
Þuríður Blær Jóhannsdóttir

Dansari/dansarar
Aðalheiður Halldórsdóttir,
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir,
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir,
Valgerður Rúnarsdóttir,

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is