Lífshætta

Heiti verks
Lífshætta

Lengd verks
52:00

Tegund
Útvarpsverk

Um verkið
Í leikritinu fléttast tvenn samtöl tveggja kvenna; annars vegar kvenna sem þekkjast ekki neitt en ná góðu sambandi og hins vegar æskuvinkvenna sem uppgötva að þær eru eiginlega hættar að þekkja hvor aðra og ná engum tengslum. Samtöl kvennanna snúast um þrár og drauma sem aldrei urðu að veruleika. Er það að þekkja einhvern endilega forsenda þess að ná góðum tengslum? Hvað hefði gerst ef þær hefðu sagt eða gert hlutina öðru vísi?

Í leikritinu er notast við upptöku á rödd Jakobínu Sigurðardóttur þegar hún las sögu sína, Í SAMA KLEFA, í útvarpið árið 1989. Jakobína lést árið 1994.

Sviðssetning
Útvarpsleikhúsið – RÚV.
Í samstarfi við Háskóla Íslands

Frumsýningardagur
7. september, 2014

Frumsýningarstaður
Rás 1

Leikskáld
Þórey Sigþórsdóttir / Jakobína Sigurðardóttir

Leikstjóri
Þórey Sigþórsdóttir

Hljóðmynd
Hljóðvinnsla: Enar Sigurðsson

Leikarar
Gunnar Hansson

Leikkonur
Halldóra Rósa Björnsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Þórey Sigþórsdóttir, Kristín Erna Úlfarsdóttir, Jakobína Sigurðardóttir.

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.ruv.is/thaettir/utvarpsleikhus