Himnaríki og helvíti

Heiti verks
Himnaríki og helvíti

Lengd verks
um það bil 3 klukkustundir

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Himnaríki og helvíti er leiksýning sem fjallar
um glímu mannsins við öfl náttúrunnar, hið
ytra sem hið innra. Sýningin byggir á þríleik
Jóns Kalmans Stefánssonar, bókunum
Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og
Hjarta mannsins – einu umtalaðasta stórvirki
íslenskra bókmennta á síðari tímum. Í öndvegi
verksins er Strákurinn; persóna sem trúir því
að með orðum megi breyta heiminum og vekja
látna aftur til lífsins. Hér er tekið á örlögum
fólks sem er nátengt hafi, fjöllum og veðri, en
örlög þeirra ráðast einnig í Plássinu þar sem
mannlífi allra tíma á Íslandi er lýst og brugðið
undir sjóngler og bæði konur og karlar takast
á í hörkulegri lífsbaráttunni. Eitt eiga allar
manneskjurnar sameiginlegt: Þær eru í leit
að ástinni, en reynast misvel undirbúnar fyrir
ferðalagið á þeim hála ís.
Bækur Jóns Kalmans Stefánssonar hafa
verið þýddar á fjölda tungumála og vakið
athygli fyrir skarpa afhjúpun á mannlegu
eðli. Jón hefur verið margsinnis tilnefndur
til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda og
Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem hann
hlaut árið 2015. Hann hefur fengið fjölda
annarra verðlauna innlend sem erlend og
hefur í seinni tíð jafnvel verið orðaður við sjálf
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Bjarni Jónsson hefur hlotið margvísleg
verðlaun og viðurkenningar fyrir verk
sín, m.a. Grímuverðlaunin, Norrænu
útvarpsleikhúsverðlaunin auk þess sem hann
hefur verið tilnefndur í tvígang til Norrænu
leikskáldaverðlaunanna.

Sviðssetning
Borgarleikhus

Frumsýningardagur
11. janúar, 2018

Frumsýningarstaður
Borgarleikhús Stóra svið

Leikskáld
Jón Kalman Stefánsson og Bjarni Jónsson

Leikstjóri
Egill Heiðar Anton Pálsson

Tónskáld
Hjálmar H.Ragnarsson

Hljóðmynd
Baldvin Þór Magnússon og Hjálmar H. Ragnarsson

Lýsing
Þórður Orri Pétursson

Búningahönnuður
Helga I. Stefánsdóttir

Leikmynd
Egill Ingibergsson

Leikarar
Bergur Þór Ingólfsson,
Björn Stefánsson,
Hannes Óli Ágústsson,
Haraldur Ari Stefánsson,
Valur Freyr Einarsson
Pétur Eggertsson
.

Leikkonur
Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Katla Margrét Þorgeirsdóttir,
Margrét Vilhjálmsdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir
Birna Rún Eiríksdóttir
Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is