Guð blessi Ísland

Heiti verks
Guð blessi Ísland

Lengd verks
Uþb 3 klst

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Á Íslandi ríkir borgarastyrjöld.
Búsáhaldabyltingin er hafin. Uppreisnarfólk
stendur fyrir framan Alþingi og lemur potta
og pönnur. Sigurinn er vís – vanhæf ríkisstjórn
fellur. Í miðjum átökunum á Austurvelli
samþykkir Alþingi að hrinda af stað rannsókn
um orsakir hrunsins. Skýrsla kemur út í apríl
2010. Hún er yfirgripsmikil – en um fram allt
æsispennandi, líkust reyfara sem varla er
hægt að leggja frá sér. Þar er flett ofan af
vafasömum viðskiptum ofurhetja íslenska
bankakerfisins og ótrúlegum samskiptum
æðstu embættismanna þjóðarinnar lýst.
Lygileg samtöl lifna við – ólíkindaleg samskipti
eiga sér stað. Þetta var partý aldarinnar. Þetta
var siðlausasta skeið í sögu þjóðarinnar. Þetta
var eitt mesta hneyksli í fjármálasögu Evrópu
fyrr og síðar!
Áhorfendum er boðið í partý aldarinnar þar
sem öllu verður tjaldað til og engum hlíft í
ofsafenginni leit að sannleikanum – eða hvað? Af hverju fór allt til fjandans? Hvernig getur
siðferði fólks brostið á þennan hátt? Hvernig
er hægt að ræna heila þjóð öllu sem hún á?
Og hvar stöndum við nú? Búum við í hinu nýja
landi sem vonir stóðu til eftir hrunið? Hefur
eitthvað breyst?
Þorleifur Örn Arnarsson og Mikael Torfason
sameina krafta sína á ný eftir einstaklega
vel heppnaða sviðsetningu á Njálu í
Borgarleikhúsinu fyrir tveimur árum. Þar var
tilurð sjálfsmyndar Íslendinga rannsökuð.
Nú mun greining á íslenskri þjóðarsál halda
áfram. Eins og í Njálu verður öllu tjaldað til:
Tónlist, dans, myndlist, leikur og sprell. Guð
blessi Ísland verður ógleymanlegur gleðileikur
um hrunið og framtíð íslensku þjóðarinnar.
Góða skemmtun – ef þú þorir!

Sviðssetning
Borgarleikhús

Frumsýningardagur
20. október, 2017

Frumsýningarstaður
Borgarleikhús Stóra svið

Leikskáld
Mikael Torfason og Þorleifur Örn Arnarsson

Leikstjóri
Þorleifur Örn Arnarsson

Danshöfundur
Aðalheiður Halldórsdóttir

Tónskáld
Katrin Hahner

Hljóðmynd
Baldvin Þór Magnússon

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Búningahönnuður
Sunneva Ása Weisshappel

Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir

Leikarar
Arnmundur Ernst Backman
Halldór Gylfason
Hilmar Guðjónsson
Hjörtur Jóhann Jónsson
Örn Árnason

Leikkonur
Aðalheiður Halldórsdóttir
Brynhildur Guðjónsdóttir
Halldóra Geirharðsdóttir
Kristín Þóra Haraldsdóttir
Maríanna Clara Lúthersdóttir

Dansari/dansarar
Aðalheiður Halldórsdóttir

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is