Helgi Þór rofnar

Heiti verks
Helgi Þór rofnar

Lengd verks
2 klst

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Lífið er dálítið niðurdrepandi á útfararstofu Jóns. Samt kviknar smá lífsneisti með syni hans, Helga Þór líksnyrti, þegar aðstandandi líksins á börunum birtist; ung stelpa sem hann þekkir. Það lifnar yfir þeim báðum, þau skilja hvort annað og eru að byrja að tengjast þegar Jón mætir á svæðið. Hann er móður og másandi eftir að hafa séð sýnir og kastar fram spádómi um að líf Helga sé í stórhættu. Og þar með byrjar allt. Helgi Þór rofnar er drepfyndið og spennandi leikrit um það hvort maðurinn komist undan sögunni um sig, geti losað sig úr álögum og hætt að trúa á spádóma.

Þetta er fimmta verkið sem Tyrfingur Tyrfingsson frumsýnir í Borgarleikhúsinu en fá af leikskáldum nýrrar kynslóðar hafa vakið jafn mikla athygli og notið jafn mikillar hylli. Áður hafa Kartöfluæturnar, Auglýsing ársins, Bláskjár og Skúrinn á sléttunni verið sýnd hér og kynnt á leiklistarhátíðum í Evrópu. Von er á uppfærslu á Kartöfluætunum í einu virtasta leikhúsi Hollands, Toneelgroep Oostpool sem hefur einnig tryggt sér réttinn á þessu nýja verki: Helgi Þór rofnar.

Sviðssetning
Borgarleikhúsið

Frumsýningardagur
17. janúar, 2020

Frumsýningarstaður
Nýja svið

Leikskáld
Tyrfingur Tyrfingsson

Leikstjóri
Stefán Jónsson

Tónskáld
Magnús Jóhann Ragnarsson

Hljóðmynd
Garðar Borgþórsson

Lýsing
Pálmi Jónsson

Búningahönnuður
Stefanía Adolfsdóttir

Leikmynd
Gretar Reynisson / Myndband Elmar Þórarinsson

Leikarar
Hilmar Guðjónsson, Bergur Þór Ingólfsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Kári Gíslason

Leikkonur
Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Erlen Ísabella Einarsdóttir.

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is/syningar/helgi-thor-rofnar