Hedda Gabler

Sviðssetning
Fjalakötturinn

Sýningarstaður
Tjarnarbíó

Frumsýning
2. nóvember 2007

Tegund
Sviðsverk – Leiksýning

Hedda Gabler kom fyrst fyrir almenningssjónir árið 1891. Verkið fjallar um yfirstéttarkonu sem hrífst af ævintýralegu líferni, hugrekki og valdi, en sér slíkt einungis í tengslum við líf karla. Hún laðar þá að sér og kann vel við félagsskap þeirra en getur ekki lifað lífi sínu jafnfætis þeim.

Með þessu verki er Ibsen gagngert að fjalla um konu sem skortir hugrekki til að ná tökum á sínu eigin lífi, og þarf því að skipta sér af lífi annarra með skelfilegum afleiðingum. Ibsen var ekki bara á undan sínum samtíma þegar hann sló fram þessari gagnrýni á stöðu konunnar, heldur tókst honum að varpa fram svo áleitinni spurningu, um það hvernig við sem manneskjur skilgreinum frelsi okkar og fjötra, að verkið virðist ávallt standast tímans tönn.

Höfundur
Henrik Ibsen

Leikstjóri
Björn Gunnlaugsson

Leikari í aðalhlutverki
Jón Ingi Hákonarson

Leikkona í aðalhlutverki
Eline McKay

Leikarar í aukahlutverkum
Sigurður Skúlason
Valdimar Örn Flygenring 

Leikkonur í aukahlutverkum
Alexía Björg Jóhannesdóttir
Ragnheiður Steindórsdóttir
Soffía Jakobsdóttir 

Leikmynd
Helga Rún Pálsdóttir

Búningar
Helga Rún Pálsdóttir

Lýsing
Sveinn Benediktsson 

Tónlist
Ragnheiður Gröndal