Frami

Heiti verks
Frami

Lengd verks
59 mín

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“

Frami er nýtt sviðsverk eftir Björn Leó Brynjarsson sem fjallar um þrá listamanns eftir velgengni í nútímasamfélagi og baráttu hans við sjálfan sig. Hópurinn leitast eftir því að draga áhorfendur með sér í alltumlykjandi sviðsupplifun, þar sem leikur með texta og frásögn blandast tilraunum með klassískan leik, nærveru líkamans og hreyfingu.

TAKATAKA er samstarfshópur listamanna sem leitast við að veita áhorfendum heildræna upplifun þar sem engrar undankomu er auðið.

Sviðssetning
Reykjavík Dance Festival og Frami

Frumsýningardagur
29. ágúst, 2015

Frumsýningarstaður
Smiðjan

Leikskáld
Björn Leó Brynjarsson

Leikstjóri
Björn Leó Brynjarsson

Hljóðmynd
Daníel Þorsteinsson og Atli Bollason

Leikmynd
Daníel Þorsteinsson og Atli Bollason

Leikarar
Kolbeinn Arnbjörsson