Flóð

Heiti verks
Flóð

Lengd verks
Uþb 1 klst og 30 mín

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Árið 1995 féll stórt snjóflóð á bæinn Flateyri á Vestfjörðum. Þrjátíu og þrjú hús lentu undir flóðinu, tuttugu manns týndu lífi, þrjátíu og fjórir björguðust. Flóð er heimildaverk byggt á þessum atburðum. Á þessu ári eru 20 ár liðin
frá því að flóðið féll og vill Borgarleikhúsið minnast atburðanna sem mörkuðu djúp spor í þjóðarsálina á sínum tíma. Þátttakendur í sýningunni rannsaka og rifja upp atburði, spyrja spurninga og raða saman brotum frá þessari örlagaríku nótt 25. október
árið 1995. Við fáum innsýn í sögur fólksins í þorpinu, þeirra sem lentu í flóðinu og þeirra sem stóðu utan við það, björgunarmanna og barnanna sem voru of ung til að muna atburðarásina en lifðu eftirmála flóðsins og ólust upp við umtalið og þögnina sem fylgdi í kjölfarið. Verkið er byggt á nýlegum viðtölum við Flateyringa og unnið í nánu samstarfi við þá. Flóð er áhrifamikið nýtt íslenskt heimildaverk um mikilvægi þess að varðveita söguna fyrir börnin okkar
og framtíðina, um samstöðu og samheldni og það sem skiptir raunverulegu máli í lífinu.
Hrafnhildur Hagalín (1965) er leikskáld
og listrænn ráðunautur Borgarleikhússins. Hún hefur sent frá sér leikrit um áratugaskeið og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar
fyrir verk sín.
Björn Thors (1978) er margverðlaunaður
leikari. Hann var meðhöfundur að verkinu Kenneth Máni sem sló rækilega í gegn í Borgarleikhúsinu á síðasta leikári. Flóð er hans fyrsta leikstjórnarverkefni við Borgarleikhúsið.

Frumsýningardagur
21. janúar, 2016

Frumsýningarstaður
Borgarleikhús Litla svið

Leikskáld
Hrafnhildur Hagalín / Björn Thors

Leikstjóri
Björn Thors

Tónskáld
Garðar Borgþórsson

Hljóðmynd
Garðar Borgþórsson

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Búningahönnuður
Snorri Freyr Hilmarsson

Leikmynd
snorri Freyr Hilmarsson

Leikarar
Hilmir Jensson

Leikkonur
Halldóra Geirharðsdóttir
Kristbjörg Kjeld
Kristín Þóra Haraldsdóttir

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is