Föndur

Föndur

Sviðssetning
Reykjavík Dance Festival

Sýningarstaður
Karamba/Dansganga

Frumsýning
4. september 2009

Tegund verks
Danssýning/Innsetning

Í innsetningunni Föndur koma saman dansararnir Silje Nordheim og Tinna Grétarsdóttir og tónlistarkonan Sólrún Sumarliðadóttir. Munu þær vinna út frá handavinnu, föndri og forskriftum glanstímarita um það hvernig best er að lifa lífinu.  Sérstakar fyrirmyndir við gerð verksins eru Martha Stewart, Oprah Winfrey og Herdís Egilsdóttir. Verkið er hluti af dansgöngu Vaðals og á sér stað gegnum dans og tónlist í litlu gallerí við Laugaveg.

Höfundar
Silje Nordheim
Sólrún Sumarliðadóttir
Tinna Grétarsdóttir

Danshöfundar
Silje Nordheim
Tinna Grétarsdóttir

Dansarar
Silje Nordheim
Tinna Grétarsdóttir

Tónlist
Sólrún Sumarliðadóttir

Hljóðmynd
Sólrún Sumarliðadóttir

– – – – – –

Reykjavík Dance Festival hóf göngu sína árið 2002. Stofnendur eru þau Ástrós Gunnarsdóttir, Cameron Corbett, Jóhann Freyr Björgvinsson, Nadia Banine, Ólöf Ingólfsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Þessir sjálfstætt starfandi danslistamenn ákváðu að sameina krafta sína og skapa hátíðina sem vettvang fyrir ný íslensk dansverk.

Hátíðin í ár verður haldin dagana 3.-6. september í Hafnarfjarðarleikhúsinu þar sem frumsýnd verða sex ný íslensk dansverk. Að auki verður haldin dansganga þar sem dans mun birtast almenningi á hinum ýmsu stöðum í miðborg Reykjavíkur bæði innandyra og utan. Þá hafa skipuleggjendur erlendra danshátíða staðfest komu sína. Með komu þeirra opnast möguleiki á mikilvægum tengslanetum, erlendu samstarfi og útrás íslenskra dansverka.

Áherslur hátíðarinnar hafa verið mismunandi frá ári til árs en meginmarkmiðið hefur ávallt verið að færa danslistina nær hinum almenna borgara, auka sýnileika nútímadans í samfélaginu og kynna sjálfstætt starfandi danslistamenn á Íslandi.

Margir íslenskir dansarar og danshöfundar starfa erlendis m.a. vegna skorts á verkefnum og aðstöðu hérlendis.  Aukið framboð sýninga eykur atvinnutækifæri fyrir dansara á Íslandi.  Um leið og hátíðin leggur áherslu á innrás danslistarinnar á Íslandi er mikilvægt að huga að útrásinni.  Danslistin er dæmi um hágæða útflutningsvöru í stöðugri framþróun.  Í ár er ætlunin að fara að fordæmi hátíðarinnar 2007 og bjóða hingað skipuleggjendum erlendra danshátíða.  Dansinn er alþjóðleg listgrein og það er hlutverk okkar að efla og rækta tengslin við samstarfsaðila okkar erlendis.

Á undanförnum árum hefur verið mikil framþróun í danslistinni hérlendis.  Æ fleiri einstaklingar og hópar hafa sprottið fram og hafa skapað sér sess hérlendis sem og erlendis.  Möguleikarnir hafa einnig stóraukist með tilkomu dansbrautar innan Listaháskóla Íslands.  Nútímadanshátíð í Reykjavík er vettvangur sem skipar stóran sess í þessari framvindu og gefur danshöfundum tækifæri til að styrkjast, eflast og þroskast.

Nútímadanshátíðin er orðin mikilvægur hlekkur fyrir listformið og hefur skapað sér fastan sess í menningarlífi borgarinnar. Samfélagslegt gildi hátíðarinnar er ótvírætt þar sem almenningi gefst kostur á að kynnast nútímadansi og fjölbreytileika hans hverju sinni.