Endalok alheimsins

Titill verks:
ENDALOK ALHEIMSINS 

Sviðssetning:
GRAL – Grindvíska Atvinnuleikhúsið

Sýningarstaður og frumsýningardagur:
4. nóvember 2012 í Kvikunni – (Saltfisksetrinu) Hafnargötu 12 a, Grindavík

Um verkið:
Stefnir, Freyja, Jón og Elvis eru síðustu manneskjurnar á jörðinni.
Gott fyrir þau – vont fyrir heiminn.

Endalok alheimsins (e. Museum af massive mistakes) er bráðfyndinn harmleikur um síðustu fjórar mannverurnar á jarðríki sem reyna að komast að því hvernig – og hvort – hægt sé að halda áfram eftir endalokin. Einn leitar að mat í rústunum á meðan annar telur að skipulag sé eina leiðin til að lifa af. Síðasta konan þarf að gæta velsæmis á meðan karlarnir berjast um völdin. Hver á að elda síðustu ýsuna? Eru kartöflur nauðsynlegar með ýsunni eftir að heimurinn hefur farist? Er siðferðislega rangt að borða bækur? En að borða hvert annað? Enginn hefur svar á reiðum höndum því allir forðast öll umræðuefni sem upp koma eins og heitan eldinn. Þetta er nýtt íslenskt leikrit eftir höfunda Horna á höfði en er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. GRAL hefur áður sýnt verkin 21 manns saknað og Horn á höfði og hlotið tilnefningar til Grímuverðlauna fyrir bæði verkin og árið 2010 hlaut Horn á höfði Grímuna sem barnasýning ársins. Endalok alheimsins verður frumsýnt föstudaginn 4. Nóvember í  Kvikunni/Saltfisksetrinu í Grindavík. Ath. Takmarkaður sýningafjöldi – aðeins sýnt í nóvember.

Fös.  4. nóv. kl. 20.00  FRUMSÝNING
Sun.  6. nóv.kl. 20.00 –  2. sýning.
Fim. 10. nóv. kl. 20.00 –  3. sýning.
Sun. 13. nóv. kl. 20.00 –  4. sýning.
Lau. 19. nóv. kl. 20.00 – 5. sýning.
Sun. 20. nóv. kl. 20.00 – 6. sýning
Fim. 24. nóv. kl. 20.00 – 7. sýning.
Sun. 27. nóv. kl. 20.00 – 8. sýning

Leikskáld:
Bergur Þór Ingólfsson og Guðmundur Brynjólfsson

Leikstjóri:
Bergur Þór Ingólfsson

Lýsing:
Magnús Arnar Sigurðsson

Búningahönnuður:
Eva Vala Guðjónsdóttir

Leikmynd:
Eva Vala Guðjónsdóttir

Leikarar
Sveinn Ólafur Gunnarsson, Víðir Guðmundsson og Benedikt Gröndal

Leikkonur
Sólveig Guðmundsdóttir