Eldhaf

Eldhaf

Sviðssetning
Borgarleikhúsið
Leikfélag Reykjavíkur

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Nýja svið

Frumsýning
27. janúar 2012

Tegund verks
Leiksýning

„Handan þagnarinnar leynist hamingjan“

Kona deyr á sjúkrahúsi. Börn hennar, tvíburarnir Símon og Janine, eru boðuð á fund lögfræðings vegna erfðaskrár móður þeirra. Hann afhendir þeim sitt hvort bréfið frá móðurinni og segir það hinstu ósk hennar að tvíburarnir afhendi bréfin í eigin persónu.

Annað á að færa bróður þeirra sem þau vissu ekki að væri til og hitt föður þeirra sem þau töldu látinn.

Systkinin halda með bréfin í óvenjulega ferð sem afhjúpar þeim áður ókunna fortíð móður þeirra og hræðilegt leyndarmál. Eldhaf er stór saga um alvöru fólk, harmleikur um fortíðina sem skapar nútímann.

Höfundur
Wajdi Mouawad

Þýðing
Hrafnhildur Hagalín

Leikstjórn
Jón Páll Eyjólfsson

Leikarar
Bergur Þór Ingólfsson
Guðjón Davíð Karlsson
Jörundur Ragnarsson
Þórir Sæmundsson

Leikkonur
Birgitta Birgisdóttir
Lára Jóhanna Jónsdóttir
Unnur Ösp Stefánsdóttir

Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir

Búningar
Ilmur Stefánsdóttir

Lýsing
Þórður Orri Pétursson

Tónlist
Hallur Ingólfsson

– – –

Wajdi Mouawad (1968) er fæddur í Líbanon en flúði með foreldrum sínum til Parísar og býr nú í Montréal í Kanada þar sem hann starfar sem leikari, leikstjóri, leikhússtjóri og leikskáld. Eldhaf er hans þekktasta verk, hefur verið þýtt á tuttugu tungumál, farið sigurför um heiminn og verið sýnt í yfir 100 uppsetningum á síðustu árum. Kvikmyndin sem gerð var upp úr leikritinu hefur hlotið einróma lof og fjölda verðlauna.