Fanný og Alexander

Fanný og Alexander

Sviðssetning
Borgarleikhúsið
Leikfélag Reykjavíkur

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Stóra sviðið

Frumsýning
28. október 2011

Tegund verks
Leiksýning

Árið er 1907 og jólunum er fagnað hjá Ekdahl-stórfjölskyldunni. Þar er dansað, leikið og sungið. Fjölskyldan er langt frá því að vera fullkomin en hún er lifandi, ástríðufull og litrík – sérstaklega í augum barnanna Fannýjar og Alexanders. Þau alast upp í hlýjum faðmi ástríkra foreldra, Emilíu og Óskars, þar sem gleði, frelsi og umburðarlyndi ráða ríkjum.

Dag einn umturnast veröld barnanna þegar faðirinn fellur óvænt frá. Í sorg sinni leitar Emilía stuðnings Edvards biskups sem áður en langt um líður ber upp bón- orð við ekkjuna. Fljótlega vaknar hún upp við þann vonda draum að heimili biskups reynist ekki það skjól sem hún þráði.

Einn fremsti kvikmyndaleikstjóri heims, Ingmar Bergman (1918–2007) vann upphaflega að þessari ógleymanlegu fjölskyldusögu í framhaldsþáttum fyrir sjónvarp en stytti síðan í kvikmynd árið 1982. Myndin var kveðjumynd hans og þakklæti til leikhússins þar sem andi Hamlets svífur yfir vötnum með afturgöngum og týndri föðurímynd. Myndin hlaut fern Óskarsverðlaun sem er fáheyrt fyrir mynd sem ekki er á ensku.

Heimsfrumsýning leikritsins var í Þjóðleikhúsi Norðmanna í Ósló í desember 2009 og er uppfærslan þegar orðin sú vinsælasta í sögu leikhússins. Verkið hefur einnig notið ómældra vinsælda í Finnlandi og Danmörku og er væntanleg á fjalir virtra leikhúsa víða um heim.

Höfundur
Ingmar Bergman

Þýðing
Þórarinn Eldjárn

Leikstjórn
Stefán Baldursson

Leikarar
Gunnar Eyjólfsson
Halldór Gylfason
Hallgrímur Ólafsson
Hilmar Guðjónsson
Jóhann Sigurðarson
Rúnar Freyr Gíslason
Theodór Júlíusson
Þröstur Leó Gunnarsson

Leikkonur
Charlotte Bøving
Elma Lísa Gunnarsdóttir
Halldóra Geirharðsdóttir
Hanna María Karlsdóttir
Isabella Rós Þorsteinsdóttir
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Kristbjörg Kjeld
Jóhanna Vigdís Arnardóttir

Leikmynd
Vytautas Narbutas

Búningar
Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson