Biðin

Sviðssetning
Akureyrarvaka
Draumaraddir
Ópera Skagafjarðar

Sýningarstaður
Iðnó

Frumsýning
4. september 2009

Tegund verks
Ópera

Biðin eftir Mikael Tariverdiev er mónó-ópera í einum þætti sem var frumsýnd árið 1986. Þessi ópera er um einmana konu, söngkonu sem bíður eftir draumaprinsinum með mikilli örvæntingu. Öll óperan á sér stað að hausti á rómantísku rússnesku torgi.  Konan á stefnumót við karlmann, sem er píanóleikari að atvinnu. Þessi kona hefur orðið fyrir mörgum áföllum í einkalífinu. Hún hefur átt farsælan feril sem söngkona, peninga og vini en vantar í lífið það sem mestu skiptir – ástina.  Verður þetta stefnumót upphafið að ástarsögu eða öðru áfalli í hennar lífi? Tónlistin í óperunni er blönduð af rómantík, nútíma- og kvikmyndatónlist sem gerir þessa óperu einstaka.

Óperan er flutt á rússnesku.

Höfundur
Mikael Tariverdiev

Leikstjórn
Aðalsteinn Bergdal

Söngvari
Alexandra Chernyshova

– – – – – –

Alexandra Chernyshova er fædd í Kiev, Úkraínu árið 1979. Hún lauk tónlistarskóla, píanónámi, árið 1993. Þaðan fór hún í söngnám í tónlistarháskólanum  Glier í Kíev, því námi lauk árið 1998. 1997 söng Alexandra sitt fyrsta  aðalhlutverk í óperunni í Kiev, Ivasik Telesik(strák) þá 18 ára gömul,  í operuni Zerbakov. Frá árinu 1998 til 2000 söng hún sem einsöngvari með Úkraínsku sinfóníuhljómsveitinni í útvarpi í Kiev. Í apríl, árið 2002, var Alexandra valin besta nýja óperuröddin í keppninni “Nýtt nafn í Úkraínu”. Síðar það ár tók hún þátt í alþjóðlegri keppni óperusöngvara í Grikklandi, Rhodes og hafnaði þar í fjórða sæti, yngst keppenda. Frá árinu 1999 til 2003 stundaði Alexandra söngnám í söng akademíunni Nezdanova, Odessu / Úkraínu, kennari hennar þar og um leið yfirkennari söngdeildar var prófessor Galina Polivanova. Á þessum árum hefur hún sungið m.a. í óperustúdíóinu í Odessa með sinfóníuhljómsveit. Frá janúar 2003 var Alexandra fastráðin sem einsöngvari í óperunni í Kiev. Samhliða því starfið hún sem einsöngvari með frægum landskarlakór í Úkraínu, Boyan.

Í lok október 2003 fluttist Alexandra til Íslands. Alexandra hefur haldið rúmlega þrjátíu einsöngstónleika hér á Íslandi, sungið með Karlakórunum Heimi og Hreim, gaf út sinn fyrsta geisladisk árið 2006. Síðar það ár stofnaði hún Óperu Skagafjarðar sem setti síðan upp óperuna La Traviata 2007/2008, Alexandra söng hlutverk Violettu. Ópera Skagafjarðar frumsýndi Rigoletto 21. maí í Skagafirði og er líklegt að fleiri sýningar verði í haust. Ópera Skagafjarðar hefur gefið út tvo geisladiska, annars vegar tónleika útgáfu með völdum lögum úr La Traviata og hins vegar perlur úr Rigoletto.

Alexandra er listarænn stjórnandi Óperu Skagafjarðar og kórstjóri óperukórsins. Alexandra stofnaði Söngskóla Alexöndru í byrjun árs 2008, skólinn er starfræktur í Skagafirði og eru 35 nemendur í söng og/eða píanónámi. Söngskóli Alexöndru er í samvinnuverkefni með tónlistarskólum Austur og Vestur Húnavatnssýslu um verkefnið „Draumaraddir norðursins“, Alexandra er listrænn stjórnandi verkefnisins og kórstjóri Stúlknakórs Norðurlands vestra. Alexandra gaf út í vor geisladiskinn „Draumur“, romantískt lög eftir Sergei Rachmaninov er hann annar geisladiskur Alexöndru. Jónas Ingimundarson er undirleikari á diskinum. Árni Bergmann þýddi ljóðin á disknum yfir á íslensku. Alexandra fékk úthlutað listamannalaunum í sex mánuði á þessu ári.