Visions from the past

Sviðssetning
Ferðaleikhúsið

Sýningarstaður
Iðnó

Frumsýning
7. júlí 2009

Tegund verks
Leiksýning ætluð ferðamönnum

Ferðaleikhúsið er elsta starfandi sjálfstæða leikhúsið. Kristín G. Magnús stofnaði leikhúsið ásamt eiginmanni sínum, Halldóri Snorrasyni. Hefur Ferðaleikhúsið síðan starfað samfleytt í 43 ár og að jafnaði staðið fyrir sýningarhaldi hér á landi auk þess sem Kristín hefur unnið að sviðsetningum erlendis. Kunnastar eru sýningar hennar fyrir ferðamenn, Light Nights, sem byrjuðu 1970.

Visions from the past, er nýtt verk leikhússins sem sýnt er í Iðnó sumarið 2009. Kristín byggir nýja verkið á raunverulegum atburðum frá árunum 1936-1956, þegar höfundur var að alast upp sem barn og unglingur í Reykjavík. Atriðin eru ýmist leikin atriði eða sýnd með myndum og filmum sem ekki hafa sést hér áður. Höfundur fór í vor til Imperial War Museum í London og hafði þar uppi á gömlum myndum sem Bretar höfðu tekið hér á landi á ofangreindu tímabili. Ljósmyndir frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur og fleiri aðilum eru einnig sýndar á milli leikatriða. Leikatriðin eru endurminningar, bæði gleði og sorgarstundir, sem höfundur upplifði. Þjóðtrúin/þjóðsögur blandast við tvö leikatriði.

Kristín leiddist út í leiklist eins og margar stöllur hennar, Brynja Benediktsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir og Bryndís Schram, eftir nám í Listdansskóla Þjóðleikhússins undir stjórn Eric Bidsted. Hún stundaði framhaldsnám við Ballet Rambert og síðan leiknám við RADA. Hún starfaði um tíma í Englandi eftir nám og vann meðal annars í leiksmiðju Charles Morowitz. Heim komin starfaði hún með Grímu og lék í útvarpi og sjónvarpi, kenndi um skeið við leiklistarskóla Þjóðleikhússins og leikstýrði hér og í Bretlandi, meðal annars í Traversee-leikhúsinu í Edinborg og Unicorn-barnaleikhúsinu fræga í London.

Höfundur
Kristín G. Magnús

Leikstjórn
Kristín G. Magnús

Leikari í aðalhlutverki
Ólafur Þór Jóhannsson

Leikkonur í aðalhlutverkum
Kristín G. Magnús
Sandra Þórðardóttir

 

ln3a ln5b  ln5a