Vígaguðinn

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Sýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Smíðaverkstæðið

Frumsýning
25. janúar 2008

Tegund
Sviðsverk – Leiksýning

Yasmina Reza er eitt þekktasta leikskáld samtímans. Hinn hárbeitti húmor hennar, sem íslenskir áhorfendur þekkja úr leikritinu Listaverkinu er sló í gegn í sýningu Þjóðleikhússins árið 1997, nýtur sín afar vel í þessu verki.

Tvenn hjón sem þekkjast ekki, foreldrar tveggja ellefu ára drengja ákveða að hittast eftir að annar drengurinn hefur slasað hinn með því að slá hann þegar þeir voru úti að leika sér. En þetta siðmenntaða fólk er ekki allt þar sem það er séð, frekar en aðrar manneskjur. Undir fáguðu yfirborði ólga hinar frumstæðu og dýrslegu hvatir. Árásargirni manneskjunnar virðast engin takmörk sett. Fyrr en varir er enginn óhultur.

Vígaguðinn er í senn æsispennandi, háalvarlegt og bráðfyndið verk, þar sem á óvæntan og ferskan hátt er fjallað um mörkin á milli þess siðmenntaða og villimannslega í manninum.

Höfundur
Yasmina Reza

Þýðing
Kristján Þórður Hrafnsson 

Leikstjóri
Melkorka Tekla Ólafsdóttir 

Leikarar í aðalhlutverkum
Baldur Trausti Hreinsson
Friðrik Friðriksson

Leikkonur í aðalhlutverkum
Edda Björg Eyjólfsdóttir
Þórunn Lárusdóttir 

Leikmynd
Stígur Steinþórsson 

Búningar
Andersen & Lauth 

Lýsing
Hörður Ágústsson