Útundan

Heiti verks
Útundan

Lengd verks
1 klst. og 30 min.

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Í leikritinu Útundan er skyggnst inn í líf þriggja para á fertugsaldri sem þrá að eignast barn en tekst það ekki. Þau leita ýmissa leiða til að láta drauminn rætast og standa frammi fyrir margskonar erfiðum spurningum. Barnleysi getur valdið gífurlegu álagi á líf fólks og haft afdrifaríkar afleiðingar á sambönd þess og líðan. En jafnvel í slíkum aðstæðum hættir tilveran ekkert að vera fáránleg, grátbrosleg og jafnvel fyndin.
Áhrifamikið og nærgöngult leikrit um sársaukann, örvæntinguna og vonina þegar það eðlilegasta og náttúrlegasta af öllu í lífinu er orðið heitasta óskin, fjarlægur draumur, takmark sem kannski mun aldrei nást.
Leikritið vakti sterk viðbrögð og hlaut mjög góða dóma þegar það var frumsýnt í Bretlandi.

**** „Beautifully crafted provocative new writing. This is a highly valuable piece of work as it braves to talk about something so common, yet never fully challenged on stage.“

**** „A moving play which fully engages the audience. It never becomes mawkish and it also contains a lot of humour.“

Leikstóri: Tinna Hrafnsdóttir
Leikmynd: Jóní Jónsdóttir
Búningar: Ólöf Benedikstdóttir
Tónlist: Sveinn Geirsson
Ljós: Arnar Ingvarsson
Leikgervi: Kristín Júlla Kristjánsdóttir

Sviðssetning
Háaloftið í samstarfi við Tjarnarbíó.

Frumsýningardagur
10. apríl, 2014

Frumsýningarstaður
Tjarnarbíó

Leikskáld
Alison Farina

Leikstjóri
Tinna Hrafnsdóttir

Tónskáld
Sveinn Geirsson

Hljóðmynd
Sveinn Geirsson

Lýsing
Arnar Ingvarsson

Búningahönnuður
Ólöf Benediktsdóttir

Leikmynd
Jóní Jónsdóttir

Leikarar
Arnmundur Ernst Backman, Benedikt Karl Gröndal, Björn Stefánsson, Magnús Guðmundsson.

Leikkonur
María Heba Þorkelsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir.

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.facebook.com/haaloftid