Strýhærði Pétur

Strýhærði Pétur

Sviðssetning
Leikfélag Reykjavíkur

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Litla sviðið

Frumsýning
18. mars 2011

Tegund verks
Leiksýning

Storkurinn kemur færandi hendi og ung hjón fá uppfyllta sína langþráðu ósk um barn. En hvað verður um barnið þegar það hlýðir ekki foreldrum sínum? Hvað verður um börn sem hrekkja dýr og fólk? Eða þau sem borða ekki matinn sinn, klippa ekki neglurnar eða bora í nefið? Sum deyja, önnur brenna, einstaka komast lífs af en þeim hefnist alltaf grimmilega fyrir óknyttina.

Strýhærði Pétur er hræðilega hlægileg og margverðlaunuð ruslópera sem hefur farið sigurför um heiminn á síðustu árum. Áhorfendur eru leiddir inn í framandi heim þar sem svartur húmor og grípandi tónar ráða ríkjum. Efniviður söngleiksins er sóttur í myndskreytta ljóðabók frá árinu 1845, Struwelpeter eftir Hoffmann lækni. Sögurnar eru dæmigerðar fyrir uppeldisaðferðir þess tíma þar sem börnum er kennt hvernig þeim bæri að haga sér með hótunum um hrottalegar afleiðingar óþekktar og óhlýðni.

Sögurnar gengu í endurnýjun lífdaga þegar hin vinsæla hljómsveit The Tiger Lillies samdi nýjan söngleik (Shockheaded Peter) sem byggði á sögunum. Söngleikurinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna, meðal annars Laurence Olivier-verðlaunin sem besta gamanleikrit ársins 2002 og tilnefningu til Grammy-verðlauna árið 2003. Hér er á ferð óvenjuleg upplifun á mörkum leikhúss, tónleika, sirkus og gjörnings.

„Klipp klipp svo ógnarhratt. Konráði blæddi út og dauður hann datt.“

Höfundur
The Tiger Lillies
Heinrich Hoffmann
Julian Crouch
Phelim McDermott
Hallur Ingólfsson
Þýðing
Hallur Ingólfsson
 
Leikstjórn
Jón Páll Eyjólfsson
Leikari í aðalhlutverki
Hilmir Snær Guðnason

Leikkona í aðalhlutverki
Halldóra Geirharðsdóttir
Leikarar í aukahlutverkum
Halldór Gylfason
Hallgrímur Ólafsson
Hallur Ingólfsson
Þórir Sæmundsson
 
Leikkona í aukahlutverki
Kristín Þóra Haraldsdóttir

Leikmynd
Halla Gunnarsdóttir

Búningar
Halla Gunnarsdóttir

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist

Hallur Ingólfsson
The Tiger Lillies

Hljóðmynd
Thorbjørn Knudsen

 
Söngvarar
Halldór Gylfason
Hallgrímur Ólafsson
Hallur Ingólfsson
Hilmir Snær Guðnason
Kristín Þóra Haraldsdóttir