Rocky Horror

Sviðssetning
Leikfélag Akureyrar

Sýningarstaður
Hof

Frumsýning
10. september 2010

Tegund verks
Söngleikur

Í Rocky Horror segir frá tveimur þægum og prúðum unglingum, þeim Brad og Janet sem verða fyrir því óláni að bíllinn þeirra bilar úti á þjóðvegi. Eina húsið í nágrenninu er kastali Dr. Frankenstein. Húsbóndi kastalans reynist vera Dr. Frank N Furter sem kemur frá plánetunni Transilvaníu.
Dr. Frank N Furter er á kafi í vísindatilraun, er að búa til hinn fullkomna mann; Rocky. Í stað þess að fá hjálp við að gera við bílinn endar hið unga siðsama par innilokað í vægast sagt undarlegu og stórhættulegu ævintýri. Rocky Horror er söngleikur sem fólk um allan heim dáir og elskar. LA er stolt af að sýna loksins þetta frábæra verk þar sem fram koma margir af bestu söngvurum og leikurum landsins.

Richard O’Brien skrifaði The Rocky Horror Show árið 1973 og verkið var frumsýnt 19. júní sama ár í London. Sýningin gekk í langan tíma og hefur verið sett upp víða um heim allar götur síðan og alltaf notið mikillar hylli. Árið 1975 var svo gerð kvikmynd eftir söngleiknum; The Rocky Horror Picture Show.

Rocky_Horror_3Höfundur
Richard O’Brien

Leikstjórn
Jón Gunnar Þórðarson

Leikari í aðalhlutverki
Magnús Jónsson

Leikari í aukahlutverki
Atli Þór Albertsson
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Guðmundur Ólafsson
Hjalti Rúnar Jónsson
Matthías Matthíasson

Leikkona í aukahlutverki
Andrea Gylfadóttir
Bryndís Ásmundsdóttir
Jana María Guðmundsdóttir

Leikmynd
Pétur Gautur Svavarsson

Búningar
Rannveig Eva Karlsdóttir

Lýsing
Freyr Vilhjálmsson

Hljóðmynd
Kyle Guðmundsson

Hljóðstjórn
Gunnar Sigurbjörnsson

Tónlistarstjóri
Andrea Gylfadóttir

Hljómsveit
Árni Heiðar Karlsson
Hallgrímur J. Ingvarsson
Halldór Gunnlaugur Hauksson
Stefán Daði Ingólfsson

Rocky1

Söngvarar
Andrea Gylfadóttir
Atli Þór Albertsson
Bryndís Ásmundsdóttir
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Guðmundur Ólafsson
Hjalti Rúnar Jónsson
Jana María Guðmundsdóttir
Magnús Jónsson
Matthías Matthíasson

Dansarar (kór)
Aron Birkir Óskarsson
Guðmundur Ingi Halldórsson
Inga María Ellertsdóttir
Ingunn Henriksen
Jóhann Axel Ingólfsson
Jónína Björt Gunnarsdóttir
Katrín Mist Haraldsdóttir
Stefán Þór Friðriksson
Þorbjörg Liesel Theodórsdóttir

Danshöfundur
Steinunn Ketilsdóttir

Rocky_Horror_2

– – – – – –

Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Það er rekið með stuðningi Akureyrarbæjar á grunni samnings við Menntamálaráðuneytið. Saga Leikfélagsins spannar nú nær heila öld, en félagið varð atvinnuleikhús árið 1973.

Starfsemin er í hjarta Akureyrar í fallegu nýuppgerðu leikhúsi, Samkomuhúsinu, sem tekur 210 manns í sæti. Samkomuhúsið hefðbundið leikhús með sviði, upphækkuðum sal og svölum. Þann 16. febrúar 2006 opnaði leikhúsið nýtt leikrými sem það nefnir einfaldlega Rýmið. Rýmið svartur kassi sem hægt er að nýta á fjölda ólíka vegu. Frá og með leikárinu 2010-11 verða sýningar LA einnig í Menningarhúsinu Hofi sem opnað verður í lok ágúst 2010. Leikhúsið sýnir einnig í Reykjavík þegar færi gefast.

Verkefnaskrá leikhússins hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt, klassísk íslensk og erlend verk, ný íslensk og erlend verk, barnaleikrit og söngleikir. Nú einbeitir leikhúsið sér að nútímaleikritun. Árlega sviðsetur leikhúsið fjórar til sjö leiksýningar á eigin vegum og í samstarfi við aðra auk ótal styttri sýninga og smærri viðburða. Fjöldi nýrra íslenskra verka hefur verið frumsýndur hjá leikhúsinu og listamenn leikhússins vinna reglulega með nýjum leikskáldum.  Fjöldi fastráðinna leikara er nokkuð breytilegur á milli tímabila en leikhópurinn hefur talið 4-11.

Rocky2

 

Rocky3