Spamalot

Heiti verks
Spamalot

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Óborganlega fyndinn nýr söngleikur! Dásamleg, fáránleg della, með dúndrandi skemmtilegri tónlist!

Söngleikurinn Spamalot er byggður á kvikmyndinni Monty Python and the Holy Grail og hefur verið sýndur við miklar vinsældir á Broadway, West End og víða um heim. Spamalot hlaut Tony verðlaunin og Drama Desk verðlaunin sem besti söngleikur ársins 2005.

Hinar goðsagnakenndu frásagnir af Arthúri konungi og riddurum hringborðsins birtast hér í glæ­nýjum búningi, þar sem hinar myrku miðaldir og veröld Broadwaysöng­leikja renna saman á undur­furðulegan og sprenghlægilegan hátt.

Hér er öllu tjaldað til sem þarf í góðan söngleik, og miklu meiru en því — huglausum hetjum, syngj­andi riddurum, risakanínum, stór­kost­legum söng­atriðum, fljúgandi beljum, can­can–dönsurum og fáklæddum meyjum.

Monty Python–hópurinn hefur í yfir fjóra áratugi notið gífurlegra vinsælda fyrir sjónvarpsþætti sína, kvikmyndir og annað skemmtiefni sem er fullt af satíru og súrrealískum húmor. Söngleikurinn Spamalot hefur slegið í gegn jafnt hjá eldheitum aðdáendum Monty Python sem öðrum.

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Frumsýningardagur
21. febrúar, 2014

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið

Leikskáld
Eric Idle

Leikstjóri
Hilmir Snær Guðnason

Danshöfundur
Cameron Corbet

Tónskáld
Eric Idle, John du Prez

Lýsing
Halldór Örn Óskarsson

Búningahönnuður
María Th. Ólafsdóttir

Leikmynd
Snorri Freyr Hilmarsson

Leikarar
Eggert Þorleifsson, Friðrik Friðriksson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Maríus Sverrisson, Oddur Júlíusson, Stefán Karl Stefánsson, Þorleifur Einarsson, Ævar Þór Benediktsson, Örn Árnason og fleiri

Leikkonur
Ágústa Eva Erlendsdóttir, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, Selma Björnsdóttir, Sibylle Köll og fleiri

Söngvari/söngvarar
Ágústa Eva Erlendsdóttir, Eggert Þorleifsson, Friðrik Friðriksson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Maríus Sverrisson, Oddur Júlíusson, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, Selma Björnsdóttir, Sibylle Köll, Stefán Karl Stefánsson, Þorleifur Einarsson, Ævar Þór Benediktsson, Örn Árnason og fleiri

Dansari/dansarar
Ágústa Eva Erlendsdóttir, Eggert Þorleifsson, Friðrik Friðriksson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Maríus Sverrisson, Oddur Júlíusson, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, Selma Björnsdóttir, Sibylle Köll, Stefán Karl Stefánsson, Þorleifur Einarsson, Ævar Þór Benediktsson, Örn Árnason og fleiri

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
leikhusid.is