Sek

Heiti verks
Sek

Lengd verks
70 mínútur

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Sek er magnað leikrit sem byggir á dómsmáli frá 19. öld. Lífsþræðir ábúenda og vinnumanns í Rifshæðarseli á Melrakkasléttu fléttast saman í örlagaríkum ástarþríhyrningi. Með því að styðjast við texta og tilsvör úr dómskjölum frá þessum tíma byggir höfundurinn, Hrafnhildur Hagalín, upp spennandi atburðarás sem kemur áhorfandanum sífellt á óvart.

Hrafnhildur Hagalín er eitt af fremstu leikskáldum landsins. Hún hlaut leikskáldaverðlaun Norðurlanda árið 1992 fyrir leikrit sitt Ég er meistarinn ásamt þvi að hljóta Norrænu Útvarps- leikhúsverðlaunin og Grímuna 2013 fyrir útvarpsverkið Opið hús. Önnur leikrit Hrafnhildar eru: Hægan Elektra (Þjóðleikhús 2000), Norður (Þjóðleikhús 2004), leikþáttaröðin Einfarar (Útvarpsleikhúsið 2009), Herbergi 408 (Herbergi 408 2010) og Jöklar (Herbergi 408 2012). Hrafnhildur hlaut styrk úr Prologus sjóðnum við ritun verksins Sek.

Leikstjórinn, Ingibjörg Huld Haraldsdóttir, útskrifaðist vorið 2011 úr Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Hún steig sín fyrstu skref sem leikstjóri í útskriftarverkefni sínu Kamelljón fjárhirðisins eftir Eugene Ionesco og setti einnig upp Ég er vindurinn eftir Jon Fosse í Þjóðleikhúskjallaranum 2012. Hún leikstýrir nú í fyrsta sinn hjá Leikfélagi Akureyrar.

Frumsýningardagur
4. október, 2013

Frumsýningarstaður
Leikfélag Akureyrar

Leikskáld
Hrafnhildur Hagalín

Leikstjóri
Ingibjörg Huld Haraldsdóttir

Tónskáld
Þorvaldur Örn Davíðsson

Hljóðmynd
Þorvaldur Örn Davíðsson

Lýsing
Jóhann Pálmason

Búningahönnuður
Stella Önnudóttir Sigurgeirsdóttir

Leikmynd
Stella Önnudóttir Sigurgeirsdóttir

Leikarar
Hannes Óli Ágústsson
Hilmir Jensson
Þráinn Karlsson

Leikkonur
Aðalbjörg Árnadóttir
Embla Björk Jónsdóttir og Særún Elma Jakobsdóttir.

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikfelag.is