Söngvaseiður

Sviðssetning
Leikfélag Reykjavíkur

Staðsetning
Borgarleikhús, Stóra svið

Frumsýning
8. maí 2009

Tegund verks
Söngleikur

María er heillandi ung kona sem bókstaflega elskar lífið og sönginn. Hún finnur sig ekki í klaustrinu og er því send í vist til ekkjumannsins Von Trapp til að gæta sjö hávaðasamra barna hans.

María áttar sig fljótlega á því að það sem börnin skortir er ást og hlýja og með söng sínum og glaðværð vinnur hún hug og hjörtu þeirra. Að lokum fellur hinn forskrúfaði Von Trapp einnig fyrir Maríu og málin virðast ætla að fá farsælan endi fyrir alla. En það er tvísýnt um hamingjuna á viðsjárverðum tímum í upphafi seinni heimstyrjaldarinnar.

Söngvaseiður er einn þekktasti söngleikur allra tíma enda haldast þar í hendur hrífandi tónlist og hjartnæm saga. Verkið var frumflutt í New York árið 1959 og hefur tvisvar verið sett upp í atvinnuleikhúsi hér á landi. Tónlistin er löngu orðin sígild og nægir þar að nefna lög eins og Do re mí og Alparós.

Í uppsetningunni er hvergi til sparað, valið hæfileikafólk í öllum hlutverkum og því óhætt að reikna með ógleymanlegri leikhúsupplifun fyrir alla fjölskylduna.

Höfundar
Richard Rogers
Oscar Hammerstein II

Sviðshandrit
Howard Lindsey
Russel Crouse

Þýðing
Flosi Ólafsson

Leikstjóri
Þórhallur Sigurðsson

Leikari í aðalhlutverki
Jóhannes Haukur Jóhannesson

Leikkona í aðalhlutverki
Valgerður Guðnadóttir

Leikarar í aukahlutverkum
Bergur þór Ingólfsson
Guðjón Davíð Karlsson
Jóhann Sigurðarson
Pétur Einarsson
Theodór Júlíusson

Leikkonur í aukahlutverkum
Hanna María Karlsdóttir
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Lára Sveinsdóttir
Linda Ásgeirsdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir
Þórunn Erna Clausen

Leikmynd
Snorri Freyr Hilmarson

Búningar
Stefanía Adólfsdóttir

Lýsing
Þórður Orri Pétursson

Tónlist
Richard Rogers

Hljóðmynd
Sigurvald Ívar Helgason

Tónlistarstjóri
Agnar Már Magnússon

Útsetningar
Morten Michelsen
Simon Revholt

Söngvarar
Agnes Gísladóttir
Árni Beinteinn Árnason
Áslaug Lárusdóttir
Egill Friðriksson
Einar Karl Jónsson
Guðjón Davíð Karlsson
Hólmfríður Hafliðadóttir
Jakob Van Oosterhout
Jóhann Sigurðarson
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
Jóhannes Haukur Jóhannesson
Katla Margrét  Þorgeirsdóttir
Lára Sveinsdóttir
Lilja Eivor Gunnarsdóttir Cederborg
María Ólafsdóttir
Rebekka Ósk Svavarsdóttir
Sara Lind Styrmisdóttir
Steinunn Lárusdóttir
Valgerður Guðnadóttir

Danshöfundur
Ástrós Gunnarsdóttir

Hljómsveit
Agnar Már Magnússon
Andrés Þór Gunnlaugsson
Birgir Bragason
Birkir Freyr Matthíasson
Bjarni Frímann Bjarnason
Einar Scheving
Haukur Gröndal
Matthías Stefánsson
Pawel Panasiuk
Sigurður Flosason
Stefán Ómar Jakobsson