Skýjaborg

Skýjaborg

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Sýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Kúlan

Frumsýning
Mars 2012

Tegund verks
Danssýning ætluð börnum

Skýjaborg er danssýning sem er sérstaklega hugsuð fyrir yngstu börnin þar sem litir, form, ljós og tónlist tala til barnanna. Verkið fjallar um tvær verur sem vakna furðulostnar upp á ókunnum stað. Þegar þær eru að byrja að ná áttum fer vindurinn skyndilega að blása og umhverfið breytist.

Á þessum dularfulla stað eru sífelld veðrabrigði, stundum er veðrið ógnvænlegt, stundum gott og blítt og verurnar verða því stöðugt að takast á við nýjar aðstæður. Sýningin tekur tæpan hálftíma en í lok hennar er börnunum boðið að koma á sviðið til að leika sér, hitta verurnar og skoða leikmyndina.

Höfundur
Tinna Grétarsdóttir og hópurinn

Leikmynd
Guðný Hrund Sigurðardóttir
Tessa-Sillars Powell

Búningar
Guðný Hrund Sigurðardóttir
Tessa-Sillars Powell

Tónlist
Sólrún Sumarliðadóttir

Dansarar
Inga Maren Rúnarsdóttir
Snædís Lilja Ingadóttir

Danshöfundur
Tinna Grétarsdóttir í samstarfi við dansara