Ástand

Tegund verks: Útvarpsverk

Höfundur: Ásdís Thoroddsen

Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson.

Leikstjóri: Ásdís Thoroddsen

Útvarpsleikrit í tveim hlutum, um ást í meinum.

 Vorið 1941. Unglingsstúlkan Guðrún kynnist breskum hermanni Bob í þann mund sem íslensk yfirvöld koma á bráðabirgðalögum sem banna samskipti ungmenna og setuliðsins og settur er á laggirnar ungmennadómstóll.  Farið er með ástir Guðrúnar og Bobs sem glæpamál og  metnaðargjarna skólastúlkan hrekst inn  í örlagaþrungna atburðarás.

Í helstu hlutverkum:
Camille Marmié, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Þórir Sæmundsson, Erling Jóhannesson, Edda Arnljótsdóttir, Þórey Sigþórsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Stefán Jónsson, Einar Aðalsteinsson, Atli Gunnarsson og Heiða Ólafsdóttir.

Auk þeirra:
Anna Kristín Arngrímsdóttir, Eggert Kaaber, Eggert Þorleifsson, Finnbogi Þorkell Jónsson, Grímkell Gollino, Helga Braga Jónsdóttir, Jón Stefán Sigurðsson, Magnús Guðmundsson, Ólafur S.K. Þorvaldz, Valur Freyr Einarsson, Viktor Már Bjarnason, Þóra Friðriksdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Sigurður Skúlason, Stefán Bjarnason, Eggert Þorleifsson, Margrét Kaaber, Valur Freyr Einarsson og Þráinn Karlsson.

Gjóla ehf framleiddi í samstarfi við Útvarpsleikhúsið.
Menningarsjóður útvarpsstöðva styrkti verkefnið.

Fyrri hluti frumfluttur sunnudag 23. október 2011
Seinni hluti frumfluttur sunnudag 30. október 2011