Skuggaleikur

Sviðssetning
Strengjaleikhúsið

Sýningarstaður
Íslenska óperan

Frumsýning
18. nóvember 2006

Tegund verks
Ópera

Skuggaleikur er ópera í fullri lengd fyrir fullorðna. Persónur óperunnar eru Skáldið, Skugginn, Skáldgyðjan og Prinsessan. Óperan byggir á sögunni Skugganum eftir H. C. Andersen. Sagan er dæmisaga, þar sem skáld felur skugga sínum að finna skáldgyðju sína. Skáldinu til skelfingar hverfur skugginn.

Löngu seinna vitjar skugginn skáldsins aftur og er þá orðinn að manni án skugga og það sem verra er án siðferðiskenndar. Skugginn nær valdi yfir skáldinu og þeir skipta um hlutverk, skugginn verður maðurinn og skáldið verður skugginn. Þegar blekkingarnar loks ganga fram af skáldinu vill hann leiða sannleikann í ljós, en það er of seint og hann geldur fyrir með lífi sínu. Þessi dæmisaga er eitt af fáum ævintýrum sem H. C. Andersen skrifaði fyrir fullorðna. Sagan er margræð, vekur upp siðferðilegar spurningar og á ekki síður erindi í nútímanum en þegar hún var skrifuð.

Höfundar
Karólína Eiríksdóttir
Sjón

Leikstjóri
Messíana Tómasdóttir

Leikmynd
Messíana Tómasdóttir

Búningar
Messíana Tómasdóttir

Lýsing
David Walters

Tónlist
Karólína Eiríksdóttir

Söngvarar
Eyjólfur Eyjólfsson
Sverrir Guðjónsson
Ingibjörg Guðjónsdóttir
Ásgerður Júníusdóttir