Skjaldbakan

Skjaldbakan

Tegund verks:
Sviðsverk

Sviðssetning:
Smári Gunnarsson og Árni Grétar Jóhannsson í samstarfi við Leikfélag Hólmavíkur.

Sýningarstaður og frumsýningardagur:
Bragginn Hólmavík 1. Júlí 2011 Norðurpóllinn 24. Ágúst 2011

Um verkið:
Einleikur byggður á þeim stóratburði þegar risaskjaldbaka kom að landi á Hólmavík árið 1963. Skjaldbakan var 2 metrar og 360kg og þótti mikið sæskrímsli, en þetta var í fyrsta sinn sem vitað er um að slíkt dýr hafi komið að landi á Íslandi. Verkið fjallar um ungan mann sem kynnist veiðimanninum og þótt þeir fari í sitt hvora áttina þá eru á milli þeirra órjúfanleg tengsl. Veiðimaðurinn tekur loforð af hinum unga manni að passa upp á bát fyrir sig þegar hann flytur frá þorpinu. Þegar báturinn dúkkar upp, mörgum árum sienna, með minningum um veiðimanninn og skjaldbökuna þá koma fram leyndir draumar hins unga manns um veiðimennsku og almenna karlmennsku. Allt kristallast þetta auðvitað í einu merkasta afreki veiðimannsins, skjaldböku ævintýrinu og ferðalagi hennar til Reykjavíkur

Leikskáld:
Smári Gunnarsson og Árni Grétar Jóhannsson

Leikstjóri:
Árni Grétar Jóhannson

Hljóðmynd:
Ragnar Ingi Hrafnkelsson og Stúdíó Sýrland

Lýsing:
Árni Grétar Jóhannsson, Jónas Gylfason og Bjarki Guðlaugsson.

Leikarar:
Smári Gunnarsson

Vefsíða leikhóps/leikhúss: http://skjaldbakanleiksyning.blogspot.com/