Síðasti dagur Sveins skotta

Sviðssetning
Kómedíuleikhúsið
Lýðveldisleikhúsið

Sýningarstaður
Edinborgarhúsið

Frumsýning
18. mars 2010

Tegund verks
Leiksýning

Síðasti dagur Sveins skotta er ljóðleikur eða söngdans þar sem jafngild eru leiklist, tónlist og dans. Það er svört kómedía sem gerist á 17. öld og fjallar um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín.

Síðasti dagur Sveins skotta gerist á síðasta ævidegi Sveins þar sem hann bíður aftöku sinnar og rifjar upp líf sitt og ástæður þess að svona er komið fyrir honum. Konur hafa verið hans örlagavaldar, fyrst móðir hans sem gerði honum í móðurkviði að hefna föður síns, síðan fórnarlömb hans og að lokum konan sem leikur á hann og hefur hann undir. Tónlist og dans leika stórt hlutverk í verkinu en tónlist og textar eru að vissu marki byggð á gamalli íslenskri þjóðlagahefð.

Höfundur
Benóný Ægisson

Leikarar
Ársæll Níelsson
Benóný Ægisson
Elfar Logi Hannesson
Steingrímur Guðmundsson

Leikkona
Halldóra Malín Pétursdóttir

Leikmynd
Marsibil G. Kristjánsdóttir

Búningar
Marsibil G. Kristjánsdóttir

Tónlist
Benóný Ægisson
Steingrímur Guðmundsson

Danshöfundur
Henna-Riikka Nurmi

Hljóðfæraleikur
Benóný Ægisson
Steingrímur Guðmundsson