Segulsvið

Heiti verks
Segulsvið

Lengd verks
2:00

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Nýtt leikverk eftir eitt af okkar fremstu leikskáldum, um unga konu í áfalli.

Ung kona áttar sig á því að það sér hana enginn í erfidrykkju eiginmannsins sem drap sig úr dugnaði. Hún hefur alltaf verið bakhliðin á eiginmanninum og veit ekki lengur hver hún er. Þegar hún ráfar út úr erfidrykkjunni finnur hún að hún hefur heldur ekkert aðdráttarafl lengur. Það sem meira er – vegfarendum finnst hún beinlínis fráhrindandi, öllum nema draumlyndum ungum manni sem dregst að henni eins og naglapakki að segulstáli. Nokkrum mánuðum síðar, eftir aðra sára lífsreynslu, reikar hún svefnlaus um miðborgina og nýtur stuðnings tveggja kvenna, Næturinnar og Rigningarinnar. Fjórar götur í gömlu Reykjavík toga hana stöðugt til sín en þar virðist fortíð hennar búa.

Sigurður Pálsson hefur sent frá sér fjölmörg leikrit af ólíkum toga og hikar ekki við að halda með áhorfendur á vit hins óvænta.

Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri, Gretar Reynisson leikmyndahöfundur og Sigurður Pálsson sameinuðu síðast krafta sína hér í Þjóðleikhúsinu í hinni rómuðu sýningu Utan gátta sem hlaut sex Grímuverðlaun, meðal annars fyrir sýningu, leikstjórn, leikmynd og leikrit ársins.

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Frumsýningardagur
12. mars, 2015

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Kassinn

Leikskáld
Sigurður Pálsson

Leikstjóri
Kristín Jóhannesdóttir

Tónskáld
Úlfur Eldjárn

Hljóðmynd
Úlfur Eldjárn og Kristján Sigmundur Einarsson

Lýsing
Halldór Örn Óskarsson og Magnús Arnar Sigurðarson

Búningahönnuður
Þórunn María Jónsdóttir

Leikmynd
Gretar Reynisson

Leikarar
Eggert Þorleifsson, Snorri Engilbertsson

Leikkonur
Elma Stefanía Ágústsdóttir, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikhusid.is