Risaeðlurnar

Heiti verks
Risaeðlurnar

Lengd verks
2:15

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi.

Listakona og sambýlismaður hennar þiggja hádegisverðarboð íslensku sendiherrahjónanna í Washington. Útverðir lands og þjóðar bjóða upp á þríréttað úr íslensku hráefni, borið fram af ungri, kínverskri húshjálp. Smám saman kemur í ljós að undir glæsilegu yfirborðinu leynast óþægileg leyndarmál. Í gestahúsi við sendiráðsbústaðinn er sonur hjónanna falinn eins og fjölskylduskömm. Þegar hann gerir sig heimakominn í boðinu fara beinagrindurnar að hrynja úr skápnum ein af annarri.

Risaeðlurnar, lokahluti leikhúsþríleiks Ragnars Bragasonar um afkima íslensks samfélags, er nístandi gamanleikur þar sem fortíð, nútíð og framtíð þjóðar mætast.

Fyrri leiksýningar höfundar, Gullregn og Óskasteinar, slógu í gegn á sínum tíma og hlutu báðar fjölda tilnefninga til Grímunnar og Grímuverðlaun.

Sviðssetning
Þjóðleikhúsið

Frumsýningardagur
20. október, 2017

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið

Leikskáld
Ragnar Bragason

Leikstjóri
Ragnar Bragason

Tónskáld
Mugison

Hljóðmynd
Kristján Sigmundur Einarsson

Lýsing
Jóhann Ágúst Friðriksson

Búningahönnuður
Filippía I. Elísdóttir

Leikmynd
Hálfdan Pedersen

Leikarar
Pálmi Gestsson, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson

Leikkonur
Edda Björgvinsdóttir, Birgitta Birgisdóttir, María Thelma Smáradóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.leikhusid.is/syningar/risaedlurnar