Reykjavíkurdætur

Heiti verks
Reykjavíkurdætur

Lengd verks
Uþb 1 klst og 20 mín

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Reykjavíkurdætrum er gefinn laus taumurinn og sprengja þakið af húsinu. Íslenska hip-hop rappsveitin Reykjavíkurdætur er hópur ungra
kvenna sem er fátt óviðkomandi í mögnuðum og oft pólitískum textum sínum. Þær hafa komið víða fram og alls staðar vakið mikla athygli, allt frá viðtalsþætti Gísla Marteins til hátíðarinnar Hróaskeldu í Danmörku. Þær hneyksla og heilla, vekja til umhugsunar og ganga langt í að fara út fyrir þægindarammann, sinn eigin og annarra, með róttækri framgöngu sinni og framsetningu. Þær eru ekki allra og allir eru ekki þeirra. Deilir þó enginn um það að Reykjavíkurdætur eru sannkallaðar sviðslistakonur. Þær snerta
við áhorfendum sínum á nýjan hátt og sögur fara af áhrifamikilli sviðsframkomu þeirra á tónleikum. Þessar ungu konur nýta sér kraft fjöldans, textans og framsækninnar og það
má með sanni segja að Reykjavíkurdætur
þora. Hvað ef Reykjavíkurdætrum væri gefinn laus taumurinn og mættu gera hvað sem þær langaði til – í Borgarleikhúsinu?
Reykjavíkurdætur taka yfir Litla sviðið í vor og láta gamminn geisa. Allt getur gerst!

Sviðssetning
Sviðshreyfingar: Kolfinna Nikulásdóttir
Juliette Louste
Sigurlaug Sara Gunnlaugsdóttir
Steinunn Jónsdóttir

Frumsýningardagur
11. maí, 2017

Frumsýningarstaður
Borgarleikhús Litla svið

Leikskáld
Reykjavíkurdætur

Leikstjóri
Kolfinna Nikulásdóttir

Tónskáld
Reykjavíkurdætur

Hljóðmynd
Salka Valsdóttir

Lýsing
Juliette Louste

Búningahönnuður
Jóhanna Rakel Jónasdóttir

Leikmynd
Jóhanna Rakel Jónasdóttir

Leikkonur
Kolfinna Nikulásdóttir
Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Salka Valsdóttir
Jóhanna Rakel
Steinunn Jónsdóttir
Sigurlaug Sara Gunnlaugsdóttir
Steiney Skúladóttir
Solveig Pálsdóttir
Þura Stína

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is