Óraunveruleikir

Heiti verks
óraunveruleikir

Lengd verks
50 min

Tegund
Dansverk

Um verkið
Nýtt íslenskt sviðsverk samið og flutt af Urði Hákonardóttur, Valgerði Rúnarsdóttur og Þyri Huld Árnadóttur.

Við lögðum upp í rannsóknarleiðangur um raunveruleikann. Snerumst í hringiðu óendanlegs sívalnings. Hvernig finnur maður mörk ímyndunaraflsins? Hvernig sannar maður hið ósannreynanlega? Hvernig skilgreinir maður hið trúlega frá hinu ótrúlega? Hver er minn raunveruleiki? Hver er þinn?

Í verkinu er skynfærunum boðið í ferðalag, mögulega á vit hins óraunverulega.

Sviðssetning
Verkið er unnið í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Frumsýningardagur
16. janúar, 2014

Frumsýningarstaður
Þjóðleikhúsið

Danshöfundur
Valgerður Rúnarsdóttir og Þyri Huld Árnadóttir

Tónskáld
Urður Hákonardóttir

Hljóðmynd
Valdimar Jóhannsson

Lýsing
Valdimar Jóhannsson

Söngvari/söngvarar
Urður Hákonardóttir

Dansari/dansarar
Valgerður Rúnarsdóttir og Þyri Huld Árnadóttir