Ódauðlegt verk um draum og veruleika

Ódauðlegt verk um draum og veruleika

Sviðssetning
Áhugaleikhús atvinnumanna

Sýningarstaður
Útgerðin

Frumsýning
7. nóvember 2010

Tegund verks
Leiksýning

odaudlegt3

Ódauðlegt verk um draum og veruleika er fjórða verkið í röð fimm Ódauðlegra verka um mannlegt eðli og tilvist. Verkið gerist á huglægum stað handan tíma og rýmis. Verkið spyr hvort sé raunverulegra, það sem fer fram í huga fólks eða það sem sýnilega hendir í veraldlegum heimi. Erum við saman í þessu? Hver metur? Hver upplifir? Hverjum er sama?

Verkin fimm eru rannsókn á áráttuhegðun mannkyns og ófullkomleika. Þau feta sig inn í augnablikið þar sem maðurinn stendur berskjaldaður frammi fyrir guði og viðurkennir vanmátt sinn.  Hvert verk um sig tekur á eiginleikum, þáttum eða áráttum í mannlegri hegðun og tilvist og varpa nýju ljósi á þekktar staðreyndir. Fyrri verk eru Ódauðlegt verk um stjórn og stjórnleysi (2005), Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna (2009) og Ódauðlegt verk um stríð og frið (2010).

AA3Höfundur
Steinunn Knútsdóttir

Textar
Leikhópurinn

Leikstjóri
Steinunn Knútsdóttir

Leikarar í aðalhlutverkum
Árni Pétur Guðjónsson
Hannes Óli Ágústsson
Orri Huginn Ágústsson
Sveinn Ólafur Gunnarsson

Leikkonur í aðalhlutverkum
Aðalbjörg Árnadóttir
Arndís Hrönn Egilsdóttir
Lára Sveinsdóttir
Ólöf Ingólfsdóttir

Leikmynd
Una Stígsdóttir

Búningar
Una Stígsdóttir

Lýsing
Ólafur Finnsson

Myndbandsvinnsla
Ólafur Finnsson

 
– – – – – –

Hægt er að horfa á verkið með því að smella hér:

Ódauðlegt verk um draum og veruleika

AA4

– – – – – –

Áhugaleikhús atvinnumanna er hópur atvinnufólks í sviðslistum sem hefur áhuga á frelsi til óháðrar listsköpunar í leiklist. Leikhúsið lítur á leiksýningar sínar sem vettvang til að velta áleitnum spurningum fyrir sér þó ekki sé langt í kímni og kæruleysi. Markmiðið með starfinu er að að skapa framsækin og áleitin sviðslistaverk sem í eðli sínu eru samtal við áhorfendur og eru óháð markaðsöflum.

Leikhúsið vill ekki fara í viðskiptasamband við áhorfendur sína og býður þess vegna áhorfendum í samtal án endurgjalds og þiggur ekki aðgangseyri á sýningar sínar. Listamenn leikhússins fengu úthlutað listamannalaunum vegna verkefna sinna árið 2010.

Hópurinn er einnig að vinna að röð 12 örverka um áráttur, kenndir og kenjar sem flutt í eru beinni útsendingu á veraldarvefnum í lok hvers mánaðar. Verkin eru viðbrögð við atburðum líðandi stundar og verða flutt öll í striklotu í Desember og munu þá marka annál ársins 2010.