No Tomorrow

Heiti verks
No Tomorrow

Lengd verks
30 mínútur

Tegund
Dansverk

Um verkið
Ekkert á morgun (No Tomorrow) eftir Ragnar Kjartansson og Margréti Bjarnadóttur er ballett fyrir átta dansara og átta gítara. Órafmagnaður hljómur sem ferðast í risastóru rými leiksviðsins. Ballettinn er yfirlýsing um hrynjandi, hreyfingu, hljómfall og óræðar tilfinningar. Hugleiðingar um þokka, innri kraft og list dansarans. Talning og rými. Hvernig hljóð og hljóðfærasláttur ferðast. Hvernig hljómfall vekur tilfinningu. Tónlist Bryce Dessner er samin sérstaklega fyrir þessar tilraunir. Saffó var Ragnari og Margréti hugleikin við samningu verksins. Textinn í verkinu hefur samt aðeins eina hendingu frá hörpuleikaranum frá Lesbos, hann er að mestu unninn upp úr skáldsögunni Point de Lendemain eða Dagur ei meir eftir Vivant Denon. Sagan er munúðarfullt ofurljóðrænt skáldverk frá ofanverðri 18. öld. Verk um manndómsvígsluna sem fólgin er í því að verða alvöru elskhugi á þeirri þokukenndu tíð. Þetta lítur kannski út eins og einhver Calvin Klein tískusýning en þetta er rókókó, á meira skylt við Watteau.

Sviðssetning
Á stóra sviði Borgarleikhússins

Frumsýningardagur
16. mars, 2017

Frumsýningarstaður
Borgarleikhúsið

Leikstjóri
Ragnar Kjartansson

Danshöfundur
Margrét Bjarnadóttir

Tónskáld
Bryce Dessner

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Búningahönnuður
Helga I. Stefánsdóttir

Leikarar

Dansari/dansarar
Aðalheiður Halldórsdóttir, Anaïs Barthes, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Halla Þórðardóttir, Heba Eir Kjeld, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.id.is