Nei, ráðherra!

Nei, ráðherra!

Sviðssetning
Leikfélag Reykjavíkur

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Stóra sviðið

Frumsýning
18. febrúar 2011

Tegund verks
Leiksýning

Ýmsum óþrifnaði hefur ráðherrann ungi sápað undir teppi, atvinnulygarinn sjálfur, en þá aldrei dauðum manni – og það á hótelherbergi – með viðhaldinu – sem er innsti koppur í búri stjórnarandstöðunnar. Það stóð ýmislegt til í þessu hótelherbergi en ekki þetta! Hvað gera ráðherrar nú?

Þeir hringja auðvitað í strangheiðarlegan og vammlausan aðstoðarmann sinn sem lendir í skítverkunum eins og venjulega. Það þarf að sjá um viðhaldið, fela verksummerki, losna við líkið, bera fé í útsmoginn þjón og síðast en ekki síst að halda öllu leyndu fyrir afbrýðisömum eiginmönnum og -konum.

Þessi drepfyndni gamanleikur kemur úr smiðju Ray Cooney konungs gamanleikjanna. Hann er Íslendingum að góðu kunnur en gamanleikirnir Með vífið í lúkunum, Tveir tvöfaldir og Viltu finna milljón? hafa allir notið vinsælda hér á landi. 

Nei, ráðherra! (Out of Order) hlaut hin eftirsóttu Olivier-verðlaun sem besti
 gamanleikurinn í Bretlandi þegar verkið var frumsýnt.

Verkið hefur slegið í gegn víða um heim en fer nú í fyrsta skipti á íslenskar leikhússfjalir og verður flutt í íslenskri heimfærslu Gísla Rúnars Jónssonar en hann hefur matreitt og kryddað marga af bestu gamanleikjum seinni ára hérlendis, m.a. Fló á skinni og Sex í sveit.

Höfundur
Ray Cooney

Íslensk heimfærsla
Gísli Rúnar Jónsson

Leikstjórn
Magnús Geir Þórðarson

Leikari í aðalhlutverki
Guðjón Davíð Karlsson

Leikkona í aðalhlutverki
Lára Jóhanna Jónsdóttir

Leikarar í aukahlutverkum
Bergur Þór Ingólfsson
Hilmar Guðjónsson
Rúnar Freyr Gíslason
Sigurður Sigurjónsson
Þröstur Leó Gunnarsson

Leikkonur í aukahlutverkum
Elma Lísa Gunnarsdóttir
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
Unnur Ösp Stefánsdóttir

Leikmynd
Snorri Freyr Hilmarsson

Búningar
Snorri Freyr Hilmarsson

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist
Baggalútur

Hljóðmynd
Ólafur Örn Thoroddsen