Lína Langsokkur

Heiti verks
Lína Langsokkur

Lengd verks
Uþb 2 klst

Tegund
Barnaleikhúsverk

Um verkið
Lína langsokkur, Herra Níels api og hesturinn eru aftur mætt til leiks ásamt vinum sínum Tomma og Önnu. Leiðindaskarfurinn frú Prússólín er staðráðin í að koma Línu fyrir á vandræðaheimili þannig að Lína þarf að hafa sig alla við vilji hún búa áfram á Sjónarhóli. Lína langsokkur er hjartahlýr og réttsýnn prakkari sem allar kynslóðir barna verða að kynnast. Ágústa Eva fer á kostum sem Lína í þessu bráðfyndna og skemmtilega leikriti sem sýnir okkur að við eigum alltaf að vera við sjálf og ekkert annað.

Astrid Lindgren höfundur Línu langsokks er einn ástsælasti barnabókahöfundur allra tíma. Hún fæddist 14. nóvember 1907 í Smálöndum í Svíþjóð og lést í Stokkhólmi 28. janúar 2002, 94 ára að aldri. Hún skrifaði samtals 40 barnabækur og fjölda myndabóka.

Vinsamlegast athugið að greiða þarf fyrir öll börn sem koma að sjá sýninguna.

Sviðssetning
Borgarleikhús

Frumsýningardagur
13. september, 2014

Frumsýningarstaður
Stóra sviðið

Leikskáld
Astrid Lindgren

Leikstjóri
Ágústa Skúladóttir

Danshöfundur
Ágústa Skúladóttir og Katrín Ingvadóttir

Tónskáld
Georg Riedel

Hljóðmynd
Baldvin Magnússon

Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson

Búningahönnuður
María Th Ólafsdóttir

Leikarar
Sigurður Þór Óskarsson, Hilmar Guðjónsson, Halldór Gylfason, Valur Freyr Einarsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Orri Huginn Ágústsson, Björn Stefánsson, Örn Árnason

Leikkonur
Ágústa Eva Erlendsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Unnur Birna Björnsdóttir

Söngvari/söngvarar
Ágústa Eva Erlendsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Unnur Birna Björnsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Hilmar Guðjónsson, Halldór Gylfason, Valur Freyr Einarsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Orri Huginn Ágústsson,Örn Árnason

Dansari/dansarar
Agla Bríet Einarsdóttir, Ágúst Beinteinn Árnason, Ágúst Örn Wigum, Álfheiður Karlsdóttir, Bjarni Hrafnkelsson, Davíð Laufdal Arnarsson, Elva María Birgisdóttir, Helena Clausen Heiðmundsdóttir, Hildur Clausen Heiðmundsdóttir, Ísabella Rós Þorsteinsdóttir, Sóley Agnarsdóttir, Steinunn Lárusdóttir.

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is