Lady’s Choice

Lady’s Choice

Sviðssetning
ArtFart

Sýningarstaður
Leikhúsbatteríið

Frumsýning
27. ágúst 2009

Tegund verks
Danssýning

Dansverk unnið út frá heimildarmyndinni „Guys and Dolls“ sem fjallar um sambönd karlmanna við kynlífsdúkkur sínar. Einnig er unnið út frá djamm menningunni á Íslandi. Hvernig ungar stúlkur koma sér sjálfar í katatónískt ástand og verða þar með að lifandi kynlífsdúkkum sem hver sem er hefur aðgang að. Hvernig eitt djamm getur orðið endir sakleysis og jafnvel lífs.

Danshöfundur
Sigriður Soffía Níelsdóttir

Leikstjóri
Sigriður Soffía Níelsdóttir

Leikkona í aðalhlutverki
Svandís Dóra Einarsdóttir

Leikkona í aukahlutverki
Margrét Lilja Vilmundardóttir

Leikmynd
Sigriður Soffía Níelsdóttir

Búningar
Sigriður Soffía Níelsdóttir

Lýsing
Egill Ingibergsson

Tónlist
Jóhann Friðgeir Jóhannsson

Hljóðmynd
Jóhann Friðgeir Jóhannsson

Dansarar
Sigríður Soffía Níelsdóttir
Snædís Ingadóttir

– – – – – –

Nánari upplýsingar um Sigríði Soffíu

artFart hátíðin er tilraunavettvangur ungs listafólks sem hefur það að markmiði að stuðla að nýsköpun og tilraunamennsku í íslenskri sviðslist. Við spyrjum okkur hver sé staða sviðslista innan samfélagsins. Hvert er gildi hennar? Hefur sviðslistin glatað mætti sínum eða hefur aldrei verið meiri þörf á henni? Getum við skapað nýtt leikhús, leikhús sem skýtur rótum sínum í samtímanum og blómstrar eða er það dæmt til að veslast upp í skugga stuðlabergsins?

Við viljum brjóta upp staðalímynd leiklistar á Íslandi sem bókmenntagreinar og opna fyrir gagnrýna umræðu um formið sjálft, á þess eigin forsendum. Við gerum okkur grein fyrir að við erum ekki að finna upp hjólið en að okkar mati teljum við þessa hátíð nauðsynlega fyrir íslenskt listalíf og að hún muni stuðla að aukinni tilraunamennsku og rannsóknum sem nauðsynlegar séu fyrir framþróun listgreina á Íslandi.