Kjúklingur í sauðagæru

Kjúklingur í sauðagæru

Sviðssetning
Íslenski dansflokkurinn

Sýningarstaður
Borgarleikhúsið, Nýja svið

Frumsýning
27. nóvember 2009

Tegund verks
Danssýning

Djammvika Íslenska dansflokksins stendur yfir dagana 25. til 28. nóvember.  Þetta er sannkölluð dansveisla þar sem frumflutt verða fjögur ný verk í vinnslu. Fyrsta kvöldið verða sýnd verkin Cardiac Strain eftir Tony Vezich og Shit eftir Kristján Ingimarsson. Annað kvöldið verða sýnd verkin Heilabrot eftir Brian Gerke og Kjúklingur í sauðagæru eftir Peter Anderson.

Með Djammviku er dansflokkurinn að gefa nýjum höfundum tækifæri til að vinna með flokknum og einnig er þetta vettvangur til að þróa og prófa nýja tækni og aðferðir við sköpunina. Mikil eftirspurn er eftir miðum á Djammviku og nú þegar er uppselt á þrjár sýningar af sex.

Kjúklingur í sauðagæru er nýjasta afurð Peters Anderson fyrir Íslenska dansflokkinn.  Peter hefur verið fastráðinn dansari hjá ÍD frá 2001 en hann er fjölhæfur listamaður á sviði dans, myndlistar og kómedíu. Verk Peters eiga rætur sínar að rekja í dansleikhúsið og hafa einkennst af léttleika og kaldhæðni en velta á sama tíma fram dýpri spurningum og jafnvel gagnrýni á umfjöllunarefnið að þessu sinni er „sársauklaust grín“.

Það er hinsvegar  sköpunarferlið sjálft sem er kjarni þessa verkefnis eða tilraunar. Peter skapaði verkið í samvinnu við dansarana með tækni sem heitir „Já og“ er gjarnan notið við kómedíu spuna. Hugmyndin var að búa til stresslaust, skemmtilegt og jákvætt andrúmsloft fyrir hópinn.

Danshöfundur
Peter Anderson

Búningar
Elín Edda Árnadóttir

Lýsing
Aðalsteinn Stefánsson

Tónlist
Peter Anderson

Dansarar
Cameron Corbett
Guðmundur Elías Knudsen
Katrín Á. Johnson
Katrín Ingvadóttir

– – – – – –

Íslenski dansflokkurinn er nútímadansflokkur og hefur aðsetur í Borgarleikhúsinu. Hjá Íd starfa að venju á annan tug dansara í fullu starfi, fastráðnir, gestadansarar og dansarar á nemendasamningi, allir með þjálfun í klassískum dansi.  Þar að auki taka dansnemar sem stunda nám við dansbraut Listaháskóla Íslands þátt í starfsemi Íd.

Íslenski dansflokkurinn hefur unnið með mörgum af fremstu danshöfundum Evrópu auk þess að leggja rækt við íslenska danssköpun með því að setja á svið verk eftir íslenska danshöfunda. Dansflokkurinn hefur ferðast víða og stefnir á sýningarferðir til Kína, Frakklands, Hollands og Bandaríkjanna á árinu, auk þess að halda reglulega sýningar á Íslandi.