Íó

Heiti verks
Íó

Lengd verks
50 mínútur

Tegund
Barnaleikhúsverk

Um verkið
Íó

Undirheimaferð stúlku og hrafns

Hafrún er ákveðin stelpa með mikið hrokkið hár. Hún elskar að ráða í drauma, lesa á hvolfi og fylgjast með tunglinu en í nótt getur hún ekki sofið. Hún saknar ömmu sinnar sárt sem er nýfarin á fund stjarnanna. Skyndilega flýgur hvítur hrafn inn í herbergið á ógnarhraða. Hafrún nefnir hann Íó. Saman leggja þau af stað í stórfenglegt ævintýri.

Þau fljúga út um glugga í átt að tungli, ganga um sofandi sand sem lifnar við, lenda í táraflóði og ferðast neðansjávar í leit að ömmu.

Íó er ljóðræn sýning um sorgarferli. Sýningin er sjónræn sviðsetning á innra ferðalagi barns. Á ferðalaginu takast Hafrún og Íó á við mögnuð öfl sem búa innra með okkur og eru jafn ómissandi og tunglið sem lýsir okkur nóttina. Íó er þroskasaga um hugrekki, vináttu, missi og leit að jafnvægi milli ljóss og myrkurs.

Sviðssetning
Leikmynda-, búninga- og brúðuhönnun: Sigríður Sunna Reynisdóttir
Brúðugerð og brúðuleikari: Aldís Davíðsdóttir
Leikkona: Gríma Kristjánsdóttir
Tónlist: Ásta Fanney Sigurðardóttir
Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson
Textílhönnun og búningagerð: Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri: Anna Rut Bjarnadóttir
Plakat og myndband: Una Lorenzen

Frumsýningardagur
29. október, 2017

Frumsýningarstaður
Tjarnarbíó

Leikskáld
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir

Leikstjóri
Aude Busson

Tónskáld
Ásta Fanney Sigurðardóttir

Búningahönnuður
Sigríður Sunna Reynisdóttir, Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir

Leikmynd
Sigríður Sunna Reynisdóttir

Leikkonur
Aldís Davíðsdóttir, Gríma Kristjánsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.facebook.com/IoGaraHengo/