Herra Pottur og ungfrú Lok

Herra Pottur og ungfrú Lok

Sviðssetning
Óperarctic
Þjóðleikhúsið

Sýningarstaður
Þjóðleikhúsið, Kúlan

Frumsýning
29. maí 2010

Tegund verks
Leiksýning ætluð börnum

Tónævintýrið um herra Pott og ungfrú Lok er draumur lítils drengs um að áhöldin í eldhúsinu lifni við. Ástir herra Potts og ungfrúar Loks fara nánast út um þúfur vegna afbrýðisemi daðurdrósarinnar Kvarnar. Pörupilturinn Klútur og hinn reglufasti herra Sópur dragast inn í atburðarás sem erfitt er að sjá fyrir endann á. Tónlistin segir einnig sögu, en það er saga djass, tangó, charleston og foxtrott.

Sýningin er bræðingur tónlistar frá 1927 eftir hinn tékkneska Bohuslav Martinu og sögu franska leikhúsmannsins Christhophe Garda frá 2007. Veröld herra Potts og ungfrúar Loks er allt í senn spennandi, undursamleg og heillandi öllum börnum allt frá fjögurra ára til hundrað og fjögurra.

Með hjálp sex hljóðfæra leikara, að minnsta kosti jafnmargra brúða og einnar sögukonu, Sólveigar Simha, er áhorfendum fylgt í ævintýralegt ferðalag um hið fagra draumaland Bohuslavs litla Martinus.

Höfundar
Bohuslav Martinu
Christophe Garda

Þýðing
Hlöðver Ellertsson

Leikstjóri
Ágústa Skúladóttir

Leikkona
Sólveig Simha

Leikmynd
Katrín Þorvaldsdóttir

Búningar
Katrín Þorvaldsdóttir

Brúður
Katrín Þorvaldsdóttir

Lýsing
Jóhann Bjarni Pálmason

Tónlist
Bohuslav Martinu

Hljóðfæraleikarar
Ármann Helgason
Ástríður Alda Sigurðardóttir
Eiríkur Örn Pálsson
Kristín Mjöll Jakobsdóttir
Sif Tulinius
Sigurður Halldórsson