Glerlaufin

Sviðssetning
Alheimurinn
Börn Loka

Sýningarstaður
Norðurpóllinn

Frumsýning
24. apríl 2010

Tegund verks
Leiksýning

Glerlaufin er öflugt breskt nútímaleikrit eftir hinn margrómaða höfund Philip Ridley. Verkið fjallar um tvo ólíka bræður, Steven og Barry. Steven fetar beinu brautina, rekur eigið fyrirtæki og á hið fullkomna heimili. Barry er svarti sauður fjölskyldunnar, óáreiðanlegur, drykkfelldur listamaður sem hefur valdið móður þeirra sárum vonbrigðum. Þó segir yfirborðið ekki allt, því þegar kafað er dýpra birtast draugar fortíðar og þaggaður sannleikurinn sem er of sársaukafullur til að þola dagsljósið. Hver er saklaus og hver er sekur? Hvert er leyndarmál glerlaufanna?
Magnað verk sem á erindi í dag.

Höfundur
Philip Ridley

Leikstjóri
Bjartmar Þórðarson

Leikarar
Jóel Sæmundsson
Ólafur S.K. Þorvaldz

Leikkonur
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
Vigdís Másdóttir