Gaukar

Heiti verks
Gaukar

Lengd verks
Uþb 1 klst og 40 mín

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Tómas hittir Gunnlaug á hótelherbergi á landsbyggðinni að vetri til. Gunnlaugur sem er eldri hefur komið sér þar fyrir ásamt gæludýri sem hann hyggst gefa frá sér. Tómas hefur mikinn áhuga á gæludýrinu og er kominn úr borginni til að skoða það. Gunnlaugi er umhugað um að finna góðan eiganda og yfirheyrir Tómas um fjölskylduhagi og reynslu af dýrahaldi. Þegar Gunnlaugur er loks að verða sannfærður um ágæti Tómasar kemur upp ákveðið vandamál sem flestir myndu kalla smáatriði en er þó nógu stórt til að setja fund mannanna í uppnám.
Gaukar fjallar um sparakstur, skilnaði, Vestfirðinga, dýralíf, smokka með ananas-bragði og Vísindakirkjuna.
Huldar Breiðfjörð sló í gegn með bók sinni Góðir Íslendingar. Hann er þekktur fyrir næma sýn á mannfólkið og sér í lagi Íslendinga. Huldar nálgast fólk af hlýju en húmorinn er aldrei langt undan. Gaukar er fyrsta leikrit hans.

Sviðssetning
Borgarleikhúsið

Frumsýningardagur
26. september, 2014

Frumsýningarstaður
Nýja sviðið

Leikskáld
Huldar Breiðfjörð

Leikstjóri
Jón Páll Eyjólfsson

Tónskáld
Úlfur Eldjárn

Hljóðmynd
Ólafur Örn Thoroddsen

Lýsing
Þórður Orri Pétursson

Búningahönnuður
Brynja Björnsdóttir

Leikmynd
Brynja Björnsdóttir

Leikarar
Jóhann Sigurðarson
Hilmar Guðjónsson

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is