Fyrirlestur um eitthvað fallegt

Heiti verks
Fyrirlestur um eitthvað fallegt

Lengd verks
70 mín.

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Fyrirlestur um eitthvað fallegt er nýtt gamanleikrit um kvíðakast aldarinnar eftir leikhópinn SmartíLab.

Baldur stígur á svið og er að hefja fyrirlestur um nýjasta listaverk sitt. Hann finnur að eitthvað er ekki eins og það á að vera… hann frýs. Hann er að fá sitt fyrsta kvíðakast. Hann kíkir inn í heilann sinn og sér þá hvar stjórnstöðin er að bila.

Við kynnumst Baldri – ótta hans, þrálátum hugsunum og leit hans að lausn. Við kynnumst líka öllum hinum Böldrunum, því kvíði býr í okkur öllum. Birtingarmyndir kvíða geta verið ótalmargar og upplifun hvers og eins er sérstök. Fimm leikarar túlka mörg andlit kvíðans, í sjónrænu, gamansömu leikverki.

Í verkinu er kvíðinn skoðaður frá ýmsum sjónarhornum og kafað í tilfinningar, hugsanir, magaverki, tölvuleiki, geðlyf, svefntruflanir, sjálfsþekkingu, sigra, bata, hugarangur og sálarfrið. Og ofurhetjan Kvíðamaðurinn kemur að sjálfsögðu við sögu.

Rannsóknir sýna að á hverju ári þjáist um 12% Íslendinga af óeðlilegum eða sjúklegum kvíða. Leikverkið fjallar á glettinn hátt um þetta erfiða málefni, með það að markmiði að vekja fólk til meðvitundar og opna umræðuna um geðheilbrigði á Íslandi enn frekar.

Höfundur: SmartíLab-hópurinn
Leikstjórn: Sara Martí
Framkvæmdastjórn: Martin L. Sörensen
Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson
Leikarar: Agnes Wild, Guðmundur Felixson, Hannes Óli Ágústsson, Kjartan Darri Kristjánsson, Sigrún Huld Skúladóttir
Hljóðmynd og myndbönd: SmartíLab-hópurinn
Frumsamið lag: Hannes Óli Ágústsson
Grafísk hönnun og umbrot: Martin L. Sörensen
Ljósmyndir: Ásgeir Ásgeirsson

Sýnt í Tjarnarbíó í apríl og maí.

Sviðssetning
SmartíLab setur upp í samstarfi við Tjarnarbíó

Frumsýningardagur
9. apríl, 2017

Frumsýningarstaður
Tjarnarbíó

Leikskáld
SmartíLab-hópurinn

Leikstjóri
Sara Martí Guðmundsdóttir

Hljóðmynd
SmartíLab-hópurinn

Lýsing
Arnar Ingvarsson

Búningahönnuður
Brynja Björnsdóttir

Leikmynd
Brynja Björnsdóttir

Leikarar
Guðmundur Felixson, Hannes Óli Ágústsson, Kjartan Darri Kristjánsson

Leikkonur
Agnes Wild, Sigrún Huld Skúladóttir

Youtube/Vimeo video

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
smartilab.is
tjarnarbio.is/vidburdir/fyrirlestur-um-eitthvad-fallegt/
facebook.com/smartilab.is