Ferjan

Heiti verks
Ferjan

Lengd verks
Uþb 2 klst

Tegund
Sviðsverk

Um verkið
Fimm íslenskar konur og þrír karlar eru stödd erlendis. Allt þetta fólk á brýnt erindi til Íslands en þar sem flugsamgöngur liggja niðri sökum eldgoss neyðast þau til að sigla heim með ryðguðum dalli sem er í sinni síðustu ferð. Þegar fólkið kemur um borð kemur í ljós að ýmislegt er öðruvísi en búist var við. Konunum er troðið saman í litla káetu á meðan karlmennirnir fá aðstöðu á rúmgóðum bar þar sem þeir spila tónlist og skemmta sér. Eftir nokkrar vangaveltur ákveða konurnar að taka málin í sínar hendur. Óvænt atburðarás er í uppsiglingu.

Kristín Marja Baldursdóttir hefur verið í hópi vinsælustu rithöfunda landsins undanfarna áratugi. Meðal hennar þekktustu og vinsælustu verka eru Karítas án titils, Óreiða á striga, Mávahlátur og Hús úr húsi. Hún er leikskáld Borgarleikhússins og hér er fyrsta leikverk Kristínar á ferðinni.

Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir hér einvala liði leikara. Hún er fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið og hefur leikstýrt fjölda verka við góðan orðstír, til dæmis Svar við bréfi Helgu og Fólkið í kjallaranum.

Sviðssetning
Borgarleikhús Litla svið

Frumsýningardagur
21. mars, 2014

Frumsýningarstaður
Borgarleikhús Litla svið

Leikskáld
Kristín Marja Baldursdóttir

Leikstjóri
Kristín Eysteinsdóttir

Tónskáld
Hallur Ingólfsson

Hljóðmynd
Baldvin Magnússon / Hallur Ingólfsson

Lýsing
Þórður Orri Pétursson

Búningahönnuður
Stefanía Adolfsdóttir

Leikmynd
Vytautas Narbutas

Leikarar

Halldór Gylfason Guðjón Davíð Karlsson
Hilmar Guðjónsson

Leikkonur
Hildur Berglind Arndal Katla Margrét Þorgeirsdóttir Birgitta Birgisdóttir
Anna Kristín Arngrímsdóttir Elva Ósk Ólafsdóttir

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is