ÉG BÝÐ MIG FRAM

Heiti verks
ÉG BÝÐ MIG FRAM

Lengd verks
60 min

Tegund
Dansverk

Um verkið
ÉG BÝÐ MIG FRAM er listahátíð sem Unnur Elísabet Gunnarsdóttir heldur utan um. Þann 26.október mun Unnur flytja þrettán þriggja mínútna verk eftir þrettán listamenn úr ólíkum áttum. Allir listamennirnir eiga það sameiginlegt að hafa veitt Unni innblástur í gegnum tíðina með sinni listsköpun. Listamennirnir fengu allir sent sama bréfið með ósk um að semja örverk.

Bréfið byrjaði svona:
Kæri listamaður þú hefur veitt mér innblástur! Mér þykir forvitnilegt hvernig þú hugsar og langar mikið til að fá að gægjast inn í hugarheim þinn…
…Allir sögðu já…

Ég býð mig fram snýst um að brjóta niður veggi. Kasta sér út í alheiminn, sjá hvort hann grípur, kastar þér tilbaka eða fer með þig í rússíbanareið. Listahátíðin snýst um að koma saman, án fordóma, án landamæra, bara fólk að vinna saman. Hittast í miðju, teygjast, kuðlast eða móta hvort annað á stuttum þremur mínútum hvort sem þær verða enn fleiri í framtíðinni eða fyrstu og síðustu mínútur samvinnu þessara tveggja aðila. Það veit það enginn nema hann taki sénsinn.

Höfundar:
Aðalheiður Halldórsdóttir – Dansverk
Arnór Dan Arnarson- Tónlistarvideo
Bergur Ebbi Benediktsson – Dansverk
Daði Freyr Pétursson – Dansverk
Kristín Gunnlaugsdóttir – Dansvideo
Hannes Þór Egilsson – Dansverk
Kristín Þóra Haraldsdóttir – leikverk
Vala Kristín Eiríksdóttir – leikverk
Saga Sigurðardóttir – videolist
Ólöf Nordal – videolist
Margrét Bjarnadóttir – sviðs performance
Barði Jóhannsson – gjörningur
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir – dansverk

Flytjandi: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
“Mín skoðun er ekki endilega sú rétta. Mín sýn er ekki sú eina. Ég vil fagna lífssýn annarra. Ég vil færa miðju alheimsins” -Unnur Elísabet.

Sýningarnar verða aðeins 5 í Mengi:
Fimmtudagskvöldið 26.október klukkan 21
Sunnudagskvöldið 5. nóvember klukkan 21
Fimmtudagskvöldið 16.nóvember klukkan 21
Fimmtudagskvöldið 23.nóvember klukkan 21
Laugardagskvöldið 25.nóvember klukkan 21

Sviðssetning
Frumsýnd verða 13 örverk sem öll eru 3 mínútur. Sýningin er sett upp í Mengi. Þessi sýning er öðruvísi í uppsetningu en flestar sýningar þar sem verið er að frumsýna 13 verk eftir 13 höfunda. Unnur Elísabet Gunnarsdóttir sér síðan um sviðsetningu og flytur þau.

Frumsýningardagur
26. október, 2017

Frumsýningarstaður
Mengi

Leikstjóri
Nokkrir/ sjá höfunda í texta um verkið

Danshöfundur
Nokkrir/ sjá höfunda í texta um verkið

Lýsing
Aron Martin Ágústsson

Leikarar
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Söngvari/söngvarar
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Arnór Dan Arnarson
Kór

Dansari/dansarar
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Bergur Ebbi
Arnór Dan Arnarson

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.facebook.com/BYDMIGFRAM/
www.instagram.com/eg_byd_mig_fram/