Drauganet

Sviðssetning

Lýðveldisleikhúsið

Sýningarstaður
Tjarnarbíó

Frumsýning
24. nóvember 2005

Tegund verks
Leiksýning

Verkið gerist í hugskoti höfundar sem er að reyna að skapa leikpersónur. Hann gerir ýmsar tilraunir á þeim og vekja þær sjaldnast mikla hrifningu leikpersónanna sem eru ofurseldar duttlungum höfundarins. Leikpersónur verksins þrá það heitast að komast í leikrit en eru svo óheppnar að hafa lent hjá duglausum höfundi. Hann á erfitt með að koma verkunum frá sér enda hefur hann ekki hugmynd um að persónurnar eiga sér sjálfstætt líf utan vitundar hans. Hann hefur því ekki grænan grun um hvaða óleik hann er að gera þeim.
Birtingarform leikpersónanna eru neytandinn sem vinnur sig upp í að verða álitsgjafi, fyrrverandi feitlaginn dægurlagasöngvari, venjuleg stelpa sem vinnur í sjoppu, formaður mannanafnanefndar, systir Siggu systur sem var ógeðslega fullkomin, stórkarl sem á svo mikið undir sér að hann lendir í erfiðleikum ef hann dansar kvikkstepp, súludansmær sem spyr grundvallarspurninga um lífið og tilveruna, fótboltabulla sem ávarpar föður sem er að meilbonda með syninum á vellinum, fyrirsæta í tilvistarkreppu, sjómaður sem er fluttur í elliblokk fyrir sunnan, eiginkona sem hefur tekið grínið í sína þjónustu til að lynda við eiginnmann sinn og húsvörður sem er öryrki og telur að hlutskipti sitt væri betra ef hann væri fluga sem líkaði vel að éta skít.

Höfundur
Benóný Ægisson

Leikstjóri

Darren Foreman

Leikarar í aðalhlutverki
Benóný Ægisson
Gunnar Eyjólfsson
Höskuldur Sæmundsson
Ólafur Guðmundsson
Páll Sigþór Pálsson
Valgeir Skagfjörð
Þröstur Guðbjartsson

Leikkonur í aðalhlutverki
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir
Brynja Valdís Gísladóttir
Ingibjörg Stefánsdóttir
Kolbrún Anna Björnsdóttir
Ingibjörg Þórisdóttir
Þórunn Erna Clausen

Leikarar í aukahlutverki

Benóný Ægisson
Gunnar Eyjólfsson
Höskuldur Sæmundsson
Ólafur Guðmundsson
Páll Sigþór Pálsson
Valgeir Skagfjörð
Þröstur Guðbjartsson

Leikkonur í aukahlutverki
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir
Brynja Valdís Gísladóttir
Ingibjörg Stefánsdóttir
Kolbrún Anna Björnsdóttir
Ingibjörg Þórisdóttir
Þórunn Erna Clausen

Lýsing

Einar Þór Einarsson

Tónlist
Benóný Ægisson

Söngvari

Benóný Ægisson

Danshöfundur
Kolbrún Anna Björnsdóttir