Búlúlala – Öldin hans Steins

Sviðssetning
Kómedíuleikhúsið

Sýningarstaður
Tjöruhúsið

Frumsýning
8. maí 2008

Tegund verks
Einleikur

Búlúlala – Öldin hans Steins er nýtt leikverk fyrir leikara og tónlistarmann sem Kómedíuleikhúsið setur á svið til að minnast aldarafmælis Steins Steinarrs. Alls verða þrjár sýningar á Ísafirði eftir það verður flakkað um Vestfirðina og sýnt á Flateyri, á Bíldudal, í Bolungarvík og í Haukadal í Dýrafirði. Einnig hefur leikhúsinu verið boðið að sýna leikinn á sérstakri Steins Steinars hátíð á Snjáfjallasetri 21. júní 2008.

Í þessum nýja ljóðaleik, Búlúlala – Öldin hans Steins, eru flutt mörg af þekktustu ljóðum Steins í bland við minna þekkt kvæði. Leikurinn er sambland leikara og tónlistarmanns og er í raun framhald af samstarfi þeirra Elfars Loga Hannessonar, leikara, og Þrastar Jóhannessonar, tónlistarmanns, sem hófst í fyrra með ljóðaleiknum Ég bið að heilsa. Í þessum nýja ljóðaleik flytur Elfar Logi ljóð Steins í leik og tali en Þröstur flytur frumsamin lög við ljóð Steins Steinars.

Til samstarfs hafa þeir fengið þriðja listamanninn sem er Marsibil G. Kristjánsdóttir sem hefur gert portretmynd af skáldinu sem gegnir hlutverki leikmyndar í sýningunni. Einsog margir vita hefur Steinn verið vinsælt myndefni margra myndlistarmanna í gegnum árin og er gaman að fá nú á aldarafmæli Steins nýja mynd af skáldinu eftir vestfirskan listamann. Meðal ljóða sem koma við sögu í Búlúlala – Öldin hans Steins má nefna Að frelsa heiminn, Barn, Miðvikudagur, Söngvarinn, Tindátarnir, Þjóðin og ég og að sjálfsögðu ljóðið Búlúlala sem leikurinn er nefndur eftir.

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði var stofnað árið 1997 og er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum. Meðal leikverka sem leikhúsið hefur sett á svið má nefna Muggur árið 2002, Steinn Steinarr árið 2003, Gísli Súrsson árið 2005, Dimmalimm árið 2006 og Jólasveinar Grýlusynir árið 2007.

Kómedíuleikhúsið stendur einnig fyrir leiklistarhátíðinni ACT ALONE sem er eina árlega leiklistarhátíðin á Íslandi. Hátíðin er helguð einleikjum og hefur vakið mikla athygli bæði hér heima og erlendis. Til gamans má geta þess að fyrr á árinu fékk Act alone Menningarverðlaun DV. Fimmta Act alone hátíðin verður haldin á Ísafirði 2. – 6. júlí næstkomandi og er aðgangur að hátíðinni ókeypis. Nánari upplýsingar um Act alone er á heimasíðu hátíðarinnar www.actalone.net Kómedíuleikhúsið er einnig á netinu og er slóðin www.komedia.is

Höfundar
Elfar Logi Hannesson
Þröstur Jóhannesson

Leikstjórar
Elfar Logi Hannesson
Þröstur Jóhannesson

Leikari
Elfar Logi Hannesson

Leikmynd
Marsibil G. Kristjánsdóttir 

Tónlist
Þröstur Jóhannesson