Blái hnötturinn

Heiti verks
Blái hnötturinn

Lengd verks
Uþb 2 klst 15 mín

Tegund
Barnaleikhúsverk

Um verkið
Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau sofa þegar þau eru þreytt, borða þegar þau eru svöng og leika sér þegar þeim dettur í hug. Kvöld eitt birtist stjarna á himnum sem fellur til „jarðar“ með miklum látum.

Í reyknum mótar fyrir skuggalegum verum og þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir börnin um dimma skóga, djúpa dali og loftin blá. Reynir þá á vináttu og ráðsnilld barnanna sem aldrei fyrr. Blái hnötturinn er mikilvægt og hugmyndaríkt ævintýri, þar sem brýnt er fyrir fólki að sýna réttlæti og mannúð og um leið er það viðvörun að hlaupa ekki eftir innantómu stuði. Síðast en ekki síst er það ábending um að varðveita æskuna í sjálfum sér og öðrum.

Leikritið hefur farið sigurför um heiminn frá því það var frumsýnt árið 2001 og unnið til fjölda verðlauna. Þau Bergur Þór og Kristjana Stefánsdóttir taka Bláa hnöttinn í faðminn, semja söngtexta og tónlist og hafa fundið tuttugu og þrjú hæfileikarík börn til að taka þátt í sýningunni.

Sviðssetning
Borgarleikhús

Frumsýningardagur
24. september, 2016

Frumsýningarstaður
Borgarleikhús Stóra svið

Leikskáld
Andri Snær Magnason, Bergur Þór Ingólfsson

Leikstjóri
Bergur Þór Ingólfsson

Danshöfundur
Chantelle Carey

Tónskáld
Kristjana Stefánsdóttir

Hljóðmynd
Garðar Borgþórsson

Lýsing
Þórður Orri Pétursson

Búningahönnuður
María Th Ólafsdóttir

Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir

Leikarar
Björn Stefánsson
Hjörtur Jóhann Jónsson

Ágúst Örn Wigum, Baldvin Alan Thorarensen, Bjarni Kristbjörnsson, Björgvin Ingi Ólafsson, Gabríel Máni Kristjánsson, Grettir Valsson, Gunnar Hrafn Kristjánsson, Hjörtur Viðar Sigurðarson, Pétur Steinn Atlason, Sölvi Viggósson Dýrfjörð

Leikkonur
Andrea Birna Guðmundsdóttir, Andrea Lapas, Emilía Bergsdóttir, Erlen Isabella Einarsdóttir, Gríma Valsdóttir, Guðríður Jóhannsdóttir, Hulda Fanný Pálsdóttir, Iðunn Ösp Hlynsdóttir, Rut Rebekka Hjartardóttir, Sóley Agnarsdóttir, Steinunn Lárusdóttir, Vera Stefánsdóttir

Söngvari/söngvarar
Guðríður Jóhannsdóttir, Iðunn Ösp Hlynsdóttir, Björgvin Ingi Ólafsson, Gunnar Hrafn Kristjánsson,

Vefsíða leikhóps/leikhúss eða aðrir tenglar
www.borgarleikhus.is