Aðventa

Sviðssetning
Möguleikhúsið

Sýningarstaður
Möguleikhúsið

Frumsýning
16. mars 2008

Tegund
Barnaverk

„Þegar hátíð fer í hönd, búa menn sig undir hana, hver á sína vísu.“

Þannig hefst saga Gunnars Gunnarssonar, Aðventa. Bókin kom út árið 1939 og er hún sú saga Gunnars sem sem víðast og oftast hefur verið gefin út. Hún kom fyrst út á dönsku, en síðar þýddi höfundurinn hana sjálfur á íslensku.

Hér er sagt frá svaðilförum vinnumannsins Benedikts sem fer til fjalla í vetraríki aðventunnar að leita þess fjár sem eftir varð er smalað var um haustið. Það er köllun hans að koma þessum eftirlegukindum til byggða fyrir hátíðirnar.

Söguna byggir höfundur á frásögnum af frægum svaðilförum Benedikts Sigurjónssonar, öðru nafni Fjalla-Bensa, á Mýrdalsöræfum og einkum þó eftirleitarferð sem hann fór í desember 1925. Þetta er klassísk saga um náungakærleika og fórnfýsi í vetrarhörkum íslenskra öræfa.

Í sýningunni er unnið eftir aðferðum frásagnarleikhússins þar sem einn leikari. Pétur Eggerz, stendur á sviðinu, flytur söguna og bregður sér jafnframt í hlutverk helstu persóna. Þá skipar hljóðmynd stóran sess í sýningunni og á þátt í að skapa heim sögunnar.

Sýningin er ætluð áhorfendum frá 13 ára aldri og tekur tæpar 60 mínútur í flutningi. Auk þess að verða sýnd í Möguleikhúsinu við Hlemm verður sýningin á faraldasfæti og geta því skólar sem og aðrir fengið hana í heimsókn til sín.

Höfundur
Alda Arnardóttir

Byggt á sögu eftir
Gunnar Gunnarsson

Leikstjórn
Alda Arnardóttir 

Leikari
Pétur Eggerz

Leikmynd
Messíana Tómasdóttir

Búningar
Messíana Tómasdóttir 

Lýsing
Bjarni Ingvarsson 

Hljóðmynd
Kristján Guðjónsson