2010, örverk um áráttur, kenndir og kenjar

2010, örverk um áráttur, kenndir og kenjar

Sviðssetning
Áhugaleikhús atvinnumanna

Sýningarstaður
Útgerðin

Frumsýning
Janúar til desember 2010

Tegund verks
Leiksýning

Örverk um áráttur, kenndir og kenjar eru tilraun til þess að beita spegli leikhússins á samtímann. Verkunum var valin skissa sem form. Unnið var hratt með atburði líðandi stundar, stemningu árstíðarinnar og andrúmsloftið í samfélaginu. Sýningarnar voru stuttar, hraðar, hráar og beinskeittar, þær voru sýndar í hráu iðnaðarhúsnæði að vidstöddu stóru kvikmynda- og útsendingarteymi með stóran hluta áhorfenda sitjandi heima í stofu við tölvuskjáinn.

Verkin voru sýnd í hádeginu síðasta fimmtudag eða föstudag hvers mánaðar í Útgerð Hugmyndahúss háskólanna á Granda, gömlu netagerð Hampiðjunnar. Hvert verk var kennt við þann mánuð sem það var flutt í. Aðgangur að verkunum var að sjálfsögðu ókeypis í anda Áhugaleikhúss atvinnumanna. en verkin voru einnig send út í beinni útsendingu á veraldarvefnum í gegnum Netleikhúsið Herbergi 408.

Lokaverkið Desember var frumsýnt að lokinni samfelldri endursýningu allra verkanna sem átti sér stað á gamlársdag 2010 og mynduðu þá örverkin 12 eitt heildstætt verk, annál ársins 2010.

Í tengslum við örverkaröðina gaf Áhugaleikhús atvinnumanna út bókina 2010 Lárétt rannsókn sem gefur innsýn inn í vinnuna með verkin og hugmyndir listamanna leikhússins um hlutverk sviðslistarinnar í samtímanum.

Höfundur
Steinunn Knútsdóttir

Leikstjóri
Steinunn Knútsdóttir

Leikarar í aukahlutverkum
Árni Pétur Guðjónsson
Hannes Óli Ágústsson
Magnús Guðmundsson
Orri Huginn Ágústsson
Rúnar Guðbrandsson
Sveinn Ólafur Gunnarsson

Leikkonur í aukahlutverkum
Aðalbjörg Árnadóttir
Arndís Hrönn Egilsdóttir
Halldóra Malín Pétursdóttir
Jórunn Sigurðardóttir
Kristjana Skúladóttir
Lára Sveinsdóttir
Ólöf Ingólfsdóttir
Steinunn Knútsdóttir

– – – – – –

Hér er hægt að smella til að horfa á verkin:

2010, örverk um áráttur, kenndir og kenjar

– – – – – –

Larett_rannsokn

– – – – – –

Áhugaleikhús atvinnumanna er hópur atvinnufólks í sviðslistum sem hefur áhuga á frelsi til óháðrar listsköpunar í leiklist. Áhugleikhús atvinnumanna lítur á leiksýningar sínar sem vettvang til að velta áleitnum spurningum fyrir sér þó ekki sé langt í kímni og kæruleysi. Markmiðið með starfinu er að að skapa framsækin og áleitin sviðslistaverk sem í eðli sínu eru samtal við áhorfendur og eru óháð markaðsöflum. Leikhúsið vill ekki fara í viðskiptasamband við áhorfendur sína og býður þess vegna áhorfendum í samtal án endurgjalds og þiggur ekki aðgangseyri á sýningar sínar.

Áhugaleikhús atvinnumanna telur að með því að bjóða áhorfendum endurgjaldslaust að sjá sýningar leikhússins geti hugsanlega myndast hópur leikhúsáhorfenda sem kynnst hefur leiklist sem er fjarri þeirri markaðsleiklist sem finna má hjá þeim stóru leiðandi leikhússtofnunum sem bera ábyrgð á rekstri stórra bygginga og eru með hundruðir listamanna og leikhúsfólks á framfæri sínu.

Leiklist áhugaleikhússins er unnin með afstöðu myndlistarinnar þar sem verkið lýtur sínum lögmálum og spyr ekki kóng nér prest um hvað selst eða ekki.

Áhugaleikhús atvinnumanna hefur áhuga á leiklist sem er til í tala til sinna áhorfenda án þess að verða meðvirk.

Öll umgerð sýninganna er einföld og allt efni sem notað er í sýningarnar eru notað, gefins og lánað enda er markmið leikhússins að gera sem mest með sem minnstum tilkostnaði. Heimspeki leikhússins er að hugvit og sköpunargáfa sé stærsta verðmæti sem heimurinn á og leggur því áherslu á að launa listamenn sína fyrir hugvit og sköpun. Þannig má segja að Áhugleikhús atvinnumanna sé „fátækt leikhús“ í veraldlegum skilningi en „ríkt leikhús“ í listrænum skilningi. Hópurinn hefur fengið aðstöðu í nýju gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna á Granda sem verður tekið í notkun í byrjun árs 2010 og er þar í samstarfi við Herbergi 408 sem er nýtt netleikhús sem opnað verður nóvemeber 2009 og er fyrsta leikhúsrými sinnar tegundar.